Gul viðvörun tekur gildi á Suðausturlandi klukkan tvö í dag vegna norðan storms. Búist er við vindi á bilinu 18 til 25 m/s og snörpum hviðum við fjöll. Varað hefur verið við því að fólk fari af stað að óþörfu út í veðrið. Viðvörunin er í gildi þar til klukkan tíu á morgun, annan dag jóla.
Þá hefur verið gefin út gul viðvörun á Austfjörðum og Austurlandi að Glettingi vegna hríðar. Viðvörunin tekur gildi á Austfjörðum klukkan tvö og gildir til klukkan ellefu í kvöld. Á Austurlandi tekur viðvörunin gildi klukkan eitt og gildir til klukkan níu í kvöld.
Slæm færð er víðast hvar á landinu og þjóðvegurinn milli Markarfljóts og Kirkjubæjarklausturs lokaður með öllu. Þá hefur óvissustigi verið lýst yfir á Hellisheiði og gæti henni verið lokað með stuttum fyrirvara.
Á annað hundrað sátu fastir
Björgunarsveitin Víkverji í Mýrdal hafði í nógu að snúast í gærkvöldi en um fimmtíu bílar lentu í vandræðum á og við Reynisfjall við Gatnabrún, við Hjörleifshöfða og austan Víkur við Múlakvísl.
„Þetta byrjaði um hálf fjögur leitið í gær út af rútu sem fór út af. Þegar var farið að draga hana upp var endalaust af bílum út um allt fastir og komust hvorki eitt né neitt, sérstaklega yfir Reynisfjallið,“ segir Ingi Már Björnsson, formaður björgunarsveitarinnar Víkverja.
Hér að neðan má skoða ljósmyndir sem teknar voru við aðgerðir Víkverja í gær.
Aðgerðum lauk ekki fyrr en á ellefta tímanum þar sem koma þurfti öllum úr bílunum í gistingu. Hátt í tvö hundruð voru í hópnum, allir erlendir ferðamenn. Léleg færð hafi verið vegna snjókomu og blint.
„Þetta er náttúrulega líka fólk sem er alls ekki vant því að keyra í þessum aðstæðum þannig að oft þurfti að taka og keyra bílana fyrir það. Þótt það væri búið að losa þá,“ segir Ingi.
Jólamaturinn betri fyrir vikið
Það hlýtur að hafa verið mikil þreyta í þínu fólki þegar það komst loksins heim?
„Nei, nei, jólasteikin var bara betri þegar maður kom heim,“ segir Ingi og hlær. Það sé samt ergilegt að rútur fari af stað þegar spáin er eins og hún var í gær.
„Það var auðvitað spáð gríðarlegri snjókomu. Það var ekki mikill vindur til trafala en það snjóaði mikið og var blint. Þannig að bílar áttu erfitt með að komast ferða sinna.“
Verkefnin héldu áfram í nótt og svo hafa björgunarsveitir þurft að manna lokunarpósta á vegum í dag.
„Við fórum aftur af stað í nótt, austur á Mýrdalssand, og það var eiginlega frá miðnætti þar til klukkan sex í morgun. Þar var bíll sem hafði farið út af og maður sem þurfti að sækja. Það var svo gríðarleg ófærð þannig að það gekk ekki neitt. Þó við værum á 49 tommu breyttum bílum komust þeir ekkert í þessum snjó,“ segir Ingi.
„Eins og staðan er núna eru allir vegirnir lokaðir. Það er bara verið að reyna að moka og opna og það tekur töluverðan tíma. Fólkið sem er komið upp á hótel er bara innlyksa og fast og fer ekkert að sleppa út á veg alveg strax.“