Ríkismiðlar Norður-Kóreu sögðu frá því í dag að Kim Jong Un, einræðisherra, hefði skipað forsvarsmönnum hers síns að auka þjálfun hermanna og vera tilbúnir til átaka. Frá Norður-Kóreu heyrast sífellt herskárri köll og eldflaugatilraunum fjölgar sífellt.
Í frétt Washington Post er haft eftir sérfræðingum í varnarmálum Suður-Kóreu að þar á bæ telji ráðamenn að öryggisástand Suður-Kóreu og heimsins hafi tekið stakkaskiptum. Vegna þess þurfi að endurmeta hve mikið Kóreumenn geti treyst á að Bandaríkjamenn komi þeim til varnar og beiti mögulega kjarnorkuvopnum sínum til varnar Suður-Kóreu.
Auknar líkur séu taldar á átökum víða í Evrópu og í Asíu og það veki áhyggjur um það hvort Bandaríkjamenn gætu yfir höfuð komið Suður-Kóreu til varnar.
Forsetinn nefndi kjarnorkuvopn
Til marks um þessa umræðu er bent á að Yoon Suk Yeol, forseti Suður-Kóreu, sagði í síðasta mánuði að kjarnorkuvopn kæmu til greina, þó það væri ólíklegur kostur. Í kjölfarið sagðist hann þó treysta fullkomlega á það að Suður-Kóreu væri undir kjarnorkuvernd Bandaríkjanna.
Kannanir í Suður-Kóreu sýna fram á að meirihluti þjóðarinnar er hlynntur því að ríkið öðlist kjarnorkuvopn vegna ógnarinnar frá Norður-Kóreu. Suður-Kórea er þó aðili að alþjóðasamningnum um að dreifa ekki kjarnorkuvopnum.
Embættismenn sögðu í samtali við Washington Post að þeir vildu taka harðari afstöðu gagnvart ógnunum frá Norður-Kóreu og að viðræður við ríkisstjórn Bandaríkjanna um hvernig það væri hægt stæðu yfir.
Einn viðmælandi miðilsins sagði að kjarnorkuvopn kæmu varla til greina en það að íbúar landsins vildu þau, væri til marks um það hve mikið þau teldu sér ógnað. Hann sagði þessar áhyggjur vera mikilvægar og það þyrfti að koma til móts við þær.
Japanir einnig með áhyggjur
Mikil spenna er í Austur-Asíu og hefur hún aukist mjög á undanförnum árum. Það er að miklu leyti vegna vopnatilrauna og kjarnorkuvopnaþróunar í Norður-Kóreu. Spennuna má einnig rekja til tilkalls Kínverja til bæði alls Suður-Kínahafs og Taívans. Kínverjar hafa þar að auki staðið í mikilli hernaðaruppbyggingu og nútímavæðingu á herafla ríkisins á undanförnum árum.
Yfirvöld í Japan hafa einnig áhyggjur af stöðu mála í Austur-Asíu. Ríkisstjórn landsins hét því í lok síðasta árs að auka fjárútlát til varnarmála til muna og að kaupa mikið magn vopna.
Hótar notkun kjarnorkuvopna
Kim hefur heitið því að fjölga kjarnorkuvopnum Norður-Kóreu á þessu ári og breytti nýverið lögum Norður-Kóreu svo hann gæti þeim samkvæmt beitt kjarnorkuvopnum „reyni einhver öfl að brjóta gegn hagsmunum ríkisins“.
Samhliða þessum breytingum hefur hótunum um beitingu kjarnorkuvopna frá Norður-Kóreu fjölgað.
Norður-Kóreumenn eru einnig sagðir vinna að þróun svokallaðra taktískra kjarnorkuvopna, sem eru minni en hefðbundnar kjarnorkusprengjur og ætlaðar til notkunar á víglínum í stað þess að granda borgum og iðnaðarsvæðum.
Varnarmálaráðherrar Bandaríkjanna og Suður-Kóreu funduðu í síðustu viku en þá sagði Lloyd Austin, varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, að frekari hergögn yrðu send til Suður-Kóreu og herafli Bandaríkjanna í Suður-Kóreu yrði aukinn. Ráðherrarnir tilkynntu einnig að sameiginlegum heræfingum yrði fjölgað.