Rjóminn af íslensku tónlistarfólki steig á svið á Hlustendaverðlaununum á föstudaginn.Vísir/Hulda Margrét
Það var mikið um dýrðir í Háskólabíói á föstudaginn þegar Hlustendaverðlaunin voru veitt í tíunda sinn.
Kynnar kvöldsins voru þau Egill Ploder, Gústi B og Þórdís Valsdóttir. Það er óhætt að segja að öllu hafi verið tjaldað til á þessari uppskeruhátíð íslenskrar tónlistar sem útvarpsstöðvarnar Bylgjan, FM957 og X977 standa fyrir.
Boðið var upp á sannkallaða tónlistarveislu því fram komu Friðrik Dór, Una Torfa, Júlí Heiðar, Reykjavíkurdætur, Superserious, Emmsjé, Gauti, Klara Elias, Eyþór Ingi og Babies, Daniil og Saga Matthildur.
Hér fyrir neðan má sjá myndir frá þessu vel heppnaða kvöldi.
Háskólabíó í fallegum búningi fyrir kvöldið.Vísir/Hulda MargrétÚtvarpsmennirnir Rikki G og Egill Ploder.Vísir/Hulda MargrétKynnar kvöldsins, Gústi B, Þórdís Vals og Egill Ploder.Vísir/Hulda MargrétEmmsjé Gauti flutti lagið Klisja og í bakgrunni voru fallegar brúðkaupsmyndir af honum og eiginkonu hans, Jovönu Schally. Vísir/Hulda MargrétFjölmiðlakonurnar Dóra Júlía og Lilja Katrín veitu verðlaun fyrir plötu ársins.Vísir/Hulda MargrétPlata ársins var Dætur með Friðriki Dór.Vísir/Hulda MargrétTónlistarkonan Klara Elias tók lagið sitt Eyjanótt.Vísir/Hulda MargrétStórglæsileg í bleiku.Vísir/Hulda MargrétVala Eiríks af Bylgjunni og Ómar Úlfur Eyþórsson af X-inu.Vísir/Hulda MargrétTónlistarkonan Bríet var kosin söngkona ársins, flytjandi ársins og átti hún lag ársins. Hún gat ekki verið viðstödd en flutti þakkarræðu í gegnum tæknina.Vísir/Hulda MargrétPálmi Ragnar Ásgeirsson fékk verðlaun fyrir upptökustjórn og hljóðblöndun. Vísir/Hulda MargrétIdol stjarnan Saga Matthildur tók lag sitt Leiðina heim.Vísir/Hulda MargrétSaga vinnur nú að nýrri plötu.Vísir/Hulda MargrétNýliði ársins, rapparinn Daniil, faðmar vin sinn.Vísir/Hulda MargrétReykjavíkurdætur fengu verðlaun fyrir myndband ársins við lagið Turn This Around.Vísir/Hulda MargrétReykjavíkurdóttirin Þuríður Blær.Vísir/Hulda MargrétÞær tóku svo að sjálfsögðu lagið.Vísir/Hulda MargrétSviðsmyndin var virkilega töff.Vísir/Hulda MargrétBríet var stödd í Kaupmannahöfn þar sem hún var með tónleika ásamt Herra Hnetusmjöri.Vísir/Hulda MargrétÚtvarpsfólkið Sighvatur Jónsson og Sigga Lund veittu verðlaun á hátíðinni.Vísir/Hulda MargrétBubbi Morthens var kosinn lagahöfundur ársins.Vísir/Hulda MargrétDaniil og Joey Christ fluttu lagið Ef þeir vilja beef, sem var með vinsælustu rapplögum síðasta árs.Vísir/Hulda MargrétAtriðið var stórskemmtilegt.Vísir/Hulda MargrétSögulegt augnablik átti sér stað þegar þeir Kristmundur Axel og Júlí Heiðar fluttu lagið Komdu til baka.Vísir/Hulda MargrétÞeir tóku einnig nýja lagið sitt Ég er.Vísir/Hulda MargrétÞað var öllu til tjaldað við atriðið.Vísir/Hulda MargrétKynnar kvöldsins stóðu sig með prýði.Vísir/Hulda MargrétFriðrik Dór fagnar. Hann var kosinn söngvari ársins og átti plötu ársins.Vísir/Hulda MargrétUna Torfa tók lagið en hún var tilnefnd sem Nýliði ársins.Vísir/Hulda MargrétUna Torfa sendir aðdáendum fingurkoss.Vísir/Hulda MargrétStjórn KÍTÓN veitti sérstök verðlaun.Vísir/Hulda MargrétTónlistarkonan Hildur Kristín hlaut KÍTÓN verðlaunin.Vísir/Hulda MargrétÓlafur Egilsson tók við heiðursverðlaunum föðurs síns, Egils Ólafssonar. Hér er hann ásamt Ívari Guðmundssyni.Vísir/Hulda MargrétEyþór Ingi heiðraði Egil Ólafsson með sérstakri syrpu af hans lögum.Vísir/Hulda MargrétMagnaður flutningur Eyþórs.Vísir/Hulda MargrétStórsöngkonan Diddú steig á svið með Eyþóri.Vísir/Hulda MargrétÞórdís Vals skein skært í pallíettunum.Vísir/Hulda MargrétEgill Ploder tók sig vel út í kynnahlutverkinu.Vísir/Hulda MargrétGústi B var flottur í bláum jakkafötum.Vísir/Hulda MargrétHljómsveitin Superserious.Vísir/Hulda MargrétDaníel Jón Jónsson úr Superserious.Vísir/Hulda MargrétSveitin tók lagið Bye bye honey.Vísir/Hulda MargrétNýliði ársins, rapparinn Daniil.Vísir/Hulda Margrét
Viðburðarík vika er nú að baki. Það er óhætt að segja að helgin hafi verið ein stór uppskeruhátíð fyrir tónlistar-, kvikmynda- og sjónvarpsfólk, því fram fóru bæði Hlustendaverðlaunin og Edduverðlaunin.
Þeir Kristmundur Axel og Júlí Heiðar slógu eftirminnilega í gegn fyrir þrettán árum. Nú hafa þeir snúið bökum saman á ný en þeir frumfluttu nýtt lag á Hlustendaverðlaununum í gær. Þá tóku þeir einnig smellinn sinn, við mikinn fögnuð viðstaddra.
Tónlistarmaðurinn Egill Ólafsson var heiðraður á Hlustendaverðlaununum í gær. Ólafur Egilsson, sonur Egils, tók við verðlaununum og sýndi myndbandskveðju frá Agli þar sem hann þakkaði fyrir sig.
Hlustendaverðlaunin voru afhent í Háskólabíói í kvöld. Þetta var í tíunda sinn sem verðlaunin voru veitt og var öllu tjaldað til. Sýnt var frá viðburðinum í beinni útsendingu á Stöð 2 og hér á Vísi.