Kane og Saka sáu um Úkraínumenn Arnar Geir Halldórsson skrifar 26. mars 2023 17:52 Markaskorarar dagsins. vísir/Getty Enska landsliðið í fótbolta átti ekki í teljandi erfiðleikum með Úkraínumenn þegar liðin mættust í C-riðli undankeppni EM á Wembley í Lundúnum í dag. Enskir fylgdu þar með á eftir góðum útisigri á Ítalíu á dögunum og eru með fullt hús stiga eftir fyrstu tvo leiki sína. Harry Kane eignaði sér markamet enska landsliðsins á dögunum og var enn í hátíðarskapi þegar hann náði forystunni fyrir Englendinga eftir undirbúning Bukayo Saka á 37.mínútu. Saka sá sjálfur um að tvöfalda forystuna á 40.mínútu eftir stoðsendingu frá Jordan Henderson og enska liðið með þægilega stöðu í leikhléi. Úkraínumenn voru að leika sinn fyrsta leik í riðlinum og náðu ekki að ógna marki heimamanna að neinu ráði. Fór að lokum svo að England vann sannfærandi 2-0 sigur. EM 2024 í Þýskalandi
Uppgjörið: Tindastóll - Stjarnan 110-97 | Stólarnir svöruðu og leiða nú úrslitaeinvígið Körfubolti
Uppgjörið: Breiðablik - Vestri 1-2 | Vestri tryggði sér síðasta farseðilinn í 8-liða úrslit Íslenski boltinn
Þeir bestu (40.-31. sæti): Gullfundur í Góða hirðinum, galdurinn í Garðabænum og költhetjan Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn Íslenski boltinn
Þeir bestu (30.-26. sæti): Markvörður stóru augnablikanna, varnargoð úr Eyjum og Vesturbænum, Smalinn og listamaðurinn