Eva skellti sér í Tækniskólann þar sem hún líkti heimsókn sinni við það þegar poppstjarnan Michael Jackson kom þangað fyrir rúmum þrjátíu árum.
Á milli þess sem Eva söng lög með Bríeti og úr kvikmyndinni High Scool Musical ræddi hún einnig við keppendur í liðsmenn Tækniskólans sem taka þátt í FRÍS.
Tækniskólinn, sem hefur fagnað sigri á Framhaldsskólaleikunum undanfarin tvö ár, vann að lokum sigur gegn Menntaskólanum á Tröllaskaga síðastliðinn miðvikudag og er því á leið í undanúrslit. Heimsókn Evu í skólann má sjá í spilaranum hér fyrir neðan.
Framhaldsskólaleikarnir halda svo áfram í kvöld þegar Fjölbrautaskólinn í Garðabæ og Fjölbrautaskóli Vesturlands á Akranesi mætast í fyrri undanúrslitaviðureign mótsins. Viðureignin verður í beinni útsendingu á Stöð 2 eSport og hér á Vísi, en bein útsending hefst klukkan 19:30.