Þýska lögreglan hefur veitt þýskum manni að nafni Christian Brueckner réttarstöðu sakbornings vegna gruns um að hann hafi rænt McCann og myrt hana í Portúgal árið 2007. Hann bjó í Algarve á þessum tíma.
Hvarf McCann fékk fjölmiðlaumfjöllun á ný á þessu ári þegar 21 árs pólsk kona, Julia Wandell, taldi sig í raun vera McCann. Hélt hún einnig úti síðu á Instagram undir nafninu I am Madelaine McCann eða ég er Madelaine McCann, sem vakti jafnframt mikla athygli. Þar sagði hún einnig frá því að lögregluyfirvöld í Póllandi og Englandi neiti að aðstoða hana við að komast í DNA-próf til að fá það staðfest.
Nú hefur DNA rannsókn staðfest að hin 21 árs gamla Julia er ekki í raun McCann. Talskona hennar segir frá þessu á Instagram. „Nú vitum við sannleikann. Þrátt fyrir að það sé ómögulegt að vita það fyrir víst, án DNA annars hvors foreldris, sýna niðurstöðurnar uppruna Juliu. Niðurstöðurnar sýna að hún er 100 prósent af pólskum ættum.“
Hún skrifar jafnframt: „Þessi saga er mun flóknari en stúlka í Póllandi sem vill athygli. Hún trúði einlæglega því sem hún hélt fram.“