Lasagne fyrir 10 manns
- 1 kg nauta og grísahakk frá Kjarnafæði
- 3 sneiðar beikon
- Ólífuolía
- 2 gulrætur
- 2 laukar
- 3 stangir sellerí
- 300 ml hvítvín
- 1 l nautasoð
- 1 rauður chilli
- 6 hvítlauksrif
- 100 gr tómatpaste
- 2 búnt steinselja
- Salt
- Pipar
- 200 gr smjör
- 500 ml mjólk
- 4 eggjarauður
- 500 gr kotasæla
- 1 stk 12 mánaða Gouda
- 2 pokar 4ja ostablanda frá MS
- 100 gr parmesan ostur
- 1 pakki lasagne blöð
- 100 gr parmesan á toppinn
- 10 skvettur af hot sauce af eigin vali
Aðferð:
Saxið beikon og steikið í 10-15 mínútur í stórum potti ásamt hakkinu. Kryddið með salti og pipar.
Saxið lauk, gulrætur, sellerí, chilli og hvítlauk og steikið í ólífuolíu í öðrum potti í 10 mínútur á meðalhita. Kryddið með salti og pipar. Blandið tómatmauki út í og steikið í um 3-5 mínútur. Hellið blöndunni út í pottinn með kjötinu.
Hellið hvítvíni út í pott og sjóðið í 10 - 15 mín. Hellið kjötsoði út í pott og sjóðið í 30- 40 mín. Hellið mjólk út í pott og sjóðið í 20 mín um það bil. Saxið eitt búnt steinselju og setjið út í pottinn ásamt smjörinu og parmesan ostinum. Sjóðið í 2-3 mín. Blandið eggjarauðum út í, eina í einu.
Raðið öllu saman samkvæmt myndbandi. Ólífuolía í botninn á fatinu og svo í eftirfarandi röð:
Lasagne blöð - sósa - Gouda ostur - lasagne blöð - sósa - 1 búnt steinsselja saxað - kotasæla - lasagne blöð - sósa - 4ra osta blanda - lasagne blöð - sósa - ostur - parmesan ostur.
Bakið í ofni undir álpappír við 150° í 60 mínútur. Takið álpappír af og bakið í 10 mínútur á 220°, hvílið lasagne í 30 mínútur og njótið.
Hvítlaukssmjör fyrir baguette:
- 200 gr olífuolía
- 14 hvítlauksrif
- Svartur pipar
- 20 gr graslaukur
- 300 gr mjúkt smjör
Aðferð:
Hellið olíu í eldfast mót og setjið hvítlauk út í. Bakið hvítlauk í 15 mínútur á 200° í ofni. Kreistið hvítlaukinn út í smjörið og hendið hýðinu. Saxið graslauk og blandið við smjörið ásamt svörtum pipar við hæfi. Skerið heilt baguette í sneiðar og smyrjið að vild.
Salat að eigin vali er fínt með, þið ráðið.

Ívar Örn Hansen er Helvítis kokkurinn sem kennir ykkur að elda bragðgóðan mat á mannamáli á Vísi og á Stöð 2+. Matreiðsluþátturinn er fyrir þá sem vilja ekkert kjaftæði, bara elda bragðgóðan mat og koma þeir inn vikulega.
Hægt er að sjá alla þættina hér á Vísi.