Sveindís Jane Jónsdóttir og stöllur hennar í Wolfsburg eru komnar í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir dramatískan 3-2 sigur á Arsenal í leik sem þurfti að framlengja. Sigurmarkið kom ekki fyrr en á 118. mínútu leiksins.
Eftir 2-2 jafntefli í Þýskalandi var ljóst að spennustigið í leik kvöldsins var mjög hátt. Þá var uppselt á Emirates-leikvanginn í Lundúnum. Alls mættu 60 þúsund manns á leik kvöldsins og ljóst að gríðarlega mikið hefur breyst á aðeins tíu árum.
10 years ago when Arsenal hosted Wolfsburg in the UWCL semifinals, there were 1,406 fans in attendance.
— B/R Football (@brfootball) May 1, 2023
Today it's a sellout at the Emirates pic.twitter.com/5viwNxp0VR
Strax í upphafi leiks virtist sem Wolfsburg væri að fara fá vítaspyrnu en eftir að boltinn fór hendina á leikmanni Arsenal innan vítateigs. Á endanum var ekkert dæmt.
Það nýtti heimaliðið sér en Stina Blackstenius kom Arsenal yfir eftir skelfilegan varnarleik gestanna þegar rúmar tíu mínútnur voru liðnar af leiknum. Arsenal breytti vörn í sókn á örskotstundu en það verður að setja spurningamerki við varnarleik Wolfsburg.
STINA BLACKSTENIUS GIVES ARSENAL THE LEAD #UWCL LIVE NOW
— DAZN Football (@DAZNFootball) May 1, 2023
https://t.co/KODI5SW6Zn
https://t.co/sRzmGRnESd pic.twitter.com/62ccOJzdtS
Lengi vel virtist sem þetta yrði eina mark fyrri hálfleiks en þegar þrjár mínútur voru til loka fyrri hálfleiks jafnaði Jill Roord með góðu skoti eftir að Alexandra Popp skallaði boltann út til hennar.
JILL ROORD LEVELS IT FOR WOLFSBURG
— DAZN Football (@DAZNFootball) May 1, 2023
WATCH #UWCL LIVE NOW
https://t.co/KODI5SW6Zn
https://t.co/sRzmGRnESd pic.twitter.com/ZZnRGQIXmq
Í uppbótartíma fyrri hálfleiks tók Sveindís Jane á rás upp vinstir vænginn. Lék hún á hvern leikmann Arsenal á fætur öðrum áður en hún lét vaða á markið. Manuela Zinsberger var hins vegar vel staðsett í marki Arsenal og varði vel, staðan því 1-1 í hálfleik.
Sveindís Jane Jónsdóttir NEARLY giving Wolfsburg the lead before halftime
— DAZN Football (@DAZNFootball) May 1, 2023
WE'RE IN FOR A GREAT SECOND HALF
WATCH #UWCL LIVE NOW
https://t.co/KODI5SW6Zn
https://t.co/sRzmGRnESd pic.twitter.com/hmGFcvwAr5
Strax í upphafi þess síðari hélt Blackstenius að hún hefði komið Skyttunum yfir þegar hún skoraði með góðu skoti eftir fyrirgjöf frá hægri. Eftir gríðarleg fagnaðarlæti heimaliðsins kom í ljós að markið var ekk gilt vegna rangstöðu.
Stina Blackstenius NEARLY gives Arsenal's the lead... only to be given for offside #UWCL LIVE NOW
— DAZN Football (@DAZNFootball) May 1, 2023
https://t.co/KODI5SW6Zn
https://t.co/sRzmGRnESd pic.twitter.com/VmtAUAGM6i
Þegar tæp klukkustund var liðin komust gestirnir frá Þýskalandi yfir. Felicitas Rauch tók hornspyrnu á nær sem Alexandra Popp skallaði í netið af stuttu færi. Wolfsburg komið yfir í leiknum sem og einvíginu.
ALEXANDRA POPP GIVES WOLFSBURG THE LEAD WITH HER FIRST GOAL AGAINST AN ENGLISH TEAM SINCE THE 2010-11 SEASON
— DAZN Football (@DAZNFootball) May 1, 2023
WATCH #UWCL LIVE NOW
https://t.co/KODI5SW6Zn
https://t.co/sRzmGRnESd pic.twitter.com/nLuz9MDDn6
Skytturnar létu það ekki á sig fá og þegar stundarfjórðungur lifði leiks jafnaði heimaliðið metin. Eftir að aukaspyrna heimaliðsins var skölluð frá gaf Carlotte Wubben-Moy boltann inn á teig, þar reis Jennifer Beattie hæst og skallaði boltann í netið.
JENNIFER BEATTIE LEVELS IT FOR ARSENAL #UWCL LIVE NOW
— DAZN Football (@DAZNFootball) May 1, 2023
https://t.co/KODI5SW6Zn
https://t.co/sRzmGRnESd pic.twitter.com/UWTWcCbaWJ
Staðan í leik kvöldsins hér 2-2 og 4-4 í einvíginu. Þar sem fleiri mörk voru ekki skoruð í venjulegum leiktíma þurfti að framlengja. Þar fékk Arsenal betri færin, Merle Frohms varði vel í marki gestanna sem og boltinn fór í þverslánna hjá gestunum.
Það er ekki að því spurt og á 118. mínútu vann Jule Brand - sem hafði komið inn fyrir Sveindísi Jane á 101. mínútu - boltann og óð inn á teig Arsneal. Þar gaf hún fyrir markið á Pauline Bremer sem gat ekki gert annað en rennt boltanum í opið markið. Reyndist það sigurmark leiksins, ótrúlegur endir á ótrúlegum leik.
PAULINE BREMER HAS SURELY WON IT FOR WOLFSBURG!!
— DAZN Football (@DAZNFootball) May 1, 2023
WATCH #UWCL LIVE NOW
https://t.co/KODI5SW6Zn
https://t.co/sRzmGRnESd pic.twitter.com/YHofsmSPHG
Wolfsburg vann þar af leiðandi leik kvöldsins 3-2 og einvígið 5-4. Sveindís Jane og stöllur mæta því Barcelona í úrslitum Meistaradeildar Evrópu þann 3. júní næstkomandi.