Þetta kemur fram í tilkynningu. Um er að ræða Hafnarfjörð, Reykjanesbæ, Árborg, Ölfus, Hveragerði og Vestmannaeyjar. Áður höfðu aðgerðir verið boðaðar í Kópavogi, Garðabæ, Mosfellsbæ og á Seltjarnarnesi.
„Félagsfólk okkar virðist hafa verið löngu tilbúið í verkföll, fólk ætlar ekki að láta þetta misrétti yfir sig ganga ofan á allt og er tilbúið til að leggja niður störf til að knýja fram réttláta niðurstöðu,“ er haft eftir Sonju Ýr Þorbergsdóttir, formanni BSRB, um kosninguna.
„Sveitarfélögin hafa þó enn tækifæri til að sjá að sér og koma til móts við starfsfólk sitt en hingað til hefur samningsviljinn verið enginn,“ segir Sonja.
Þátttaka var mjög góð í öllum sveitarfélögum eða frá 72 til 90 prósent. Í Hafnarfirði samþykktu 95,36 prósent verkfallsboðun, í Reykjanesbæ voru það 97,97 prósent, í Árborg 87,69 prósent, í Ölfusi 90,91 prósent, í Hveragerði 91,55 prósent en í Vestmannaeyjum var atkvæðagreiðslan tvíþætt og samþykktu 100 prósent félagsmanna verkfallsboðun í báðum atkvæðagreiðslum, að því er segir í tilkynningunni.
Yfir 1500 BSRB félagar leggja því að óbreyttu niður störf í maí og júní hjá 10 sveitarfélögum. Gangi ekki að semja verður gripið til enn frekari aðgerða. Ljóst er að verkföllin munu hafa veruleg áhrif á leik- og grunnskóla, frístundarmiðstöðvar og hafnarstarfsemi.