Vör Söndru rifnaði við höggið: „Eins rautt spjald og það verður“ Sindri Sverrisson skrifar 12. maí 2023 13:37 Sandra María Jessen mætti í viðtal eftir að vörin rifnaði, en hún skoraði sigurmark Þórs/KA gegn ÍBV á sunnudaginn skömmu áður en hún fékk olnbogaskot í andlitið. Stöð 2 Sport Sauma þurfti nokkur spor í vör Söndru Maríu Jessen eftir höggið sem hún fékk frá Holly O‘Neill í leik Þórs/KA við ÍBV í Vestmannaeyjum á sunnudag, í Bestu deildinni í fótbolta. Málið var skoðað í Bestu mörkunum á Stöð 2 Sport í gærkvöld. Sandra hafði þegar skorað eina mark leiksins þegar hún fékk olnbogaskotið frá O‘Neill. Guðmundur Páll Friðbertsson, dómari leiksins, lyfti fyrst gula spjaldinu en eftir að hafa ráðfært sig við aðstoðardómara rak hann O‘Neill af velli. Þjálfari Eyjakvenna, Todor Hristov, var hreinskilinn varðandi hegðun síns leikmanns: „Ég verð að vera hreinskilinn með að þetta var rautt spjald. Þetta er óafsakanlegt,“ sagði Hristov en atvikið og umræðuna í Bestu mörkunum má sjá hér að neðan. Klippa: Bestu mörkin - Höggið sem Sandra fékk í andlitið „Þetta er eins rautt spjald og það verður,“ sagði Mist Edvardsdóttir afdráttarlaust í Bestu mörkunum. Og hún var ánægð með að sjá dómarann skipta um skoðun: „Hann hefur haldið fyrst að þetta væri óvart en sem betur fer, að því er virðist, sá aðstoðardómarinn þetta. Ég ætla bara að hrósa Guðmundi fyrir að breyta þessu, taka gula spjaldið til baka,“ sagði Mist. „Ég held að ekkert annað hafi verið hægt. Og eftir þetta atvik fjaraði leikurinn út fyrir ÍBV,“ sagði Helena Ólafsdóttir en umræðuna og hluta af viðtali við Söndru og Hristov má sjá hér að ofan. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér. Besta deild kvenna Þór Akureyri KA Bestu mörkin Mest lesið Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Fótbolti Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn „Eigum skilið að finna til“ Enski boltinn Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Handbolti Dagskráin í dag: Lengjubikar kvenna, úrvalsdeildin í keilu og NBA Sport Fleiri fréttir Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Sjá meira
Sandra hafði þegar skorað eina mark leiksins þegar hún fékk olnbogaskotið frá O‘Neill. Guðmundur Páll Friðbertsson, dómari leiksins, lyfti fyrst gula spjaldinu en eftir að hafa ráðfært sig við aðstoðardómara rak hann O‘Neill af velli. Þjálfari Eyjakvenna, Todor Hristov, var hreinskilinn varðandi hegðun síns leikmanns: „Ég verð að vera hreinskilinn með að þetta var rautt spjald. Þetta er óafsakanlegt,“ sagði Hristov en atvikið og umræðuna í Bestu mörkunum má sjá hér að neðan. Klippa: Bestu mörkin - Höggið sem Sandra fékk í andlitið „Þetta er eins rautt spjald og það verður,“ sagði Mist Edvardsdóttir afdráttarlaust í Bestu mörkunum. Og hún var ánægð með að sjá dómarann skipta um skoðun: „Hann hefur haldið fyrst að þetta væri óvart en sem betur fer, að því er virðist, sá aðstoðardómarinn þetta. Ég ætla bara að hrósa Guðmundi fyrir að breyta þessu, taka gula spjaldið til baka,“ sagði Mist. „Ég held að ekkert annað hafi verið hægt. Og eftir þetta atvik fjaraði leikurinn út fyrir ÍBV,“ sagði Helena Ólafsdóttir en umræðuna og hluta af viðtali við Söndru og Hristov má sjá hér að ofan. Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deildin er á Stöð 2 Sport. Smelltu hér til að horfa á leiki og þætti. Besta deildin er hluti af Stöð 2 Sport Ísland sem kostar 4.990 kr. á mánuði og má kaupa hér.
Besta deild kvenna Þór Akureyri KA Bestu mörkin Mest lesið Segja Bandaríkin ekki tilbúin fyrir HM og Ólympíuleika Sport Kári kemur inn í hópinn gegn Tyrkjum Körfubolti Framtíðaráform Laugardalsvallar kynnt á ársþingi KSÍ Fótbolti „Pínu erfitt að hlæja að Kára“ Sport Glæsimörk á Kanarí tryggðu toppsætið Fótbolti Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Pulis skellihló er hann gerði grín að íslensku eigendunum Enski boltinn „Eigum skilið að finna til“ Enski boltinn Enn einn stórleikur Elvars og Melsungen áfram á toppnum Handbolti Dagskráin í dag: Lengjubikar kvenna, úrvalsdeildin í keilu og NBA Sport Fleiri fréttir Góður sigur Vestra og Fram tapaði gegn Lengjudeildarliði Samþykktu að taka áminningu af leikmönnum og fjölga útlendingum ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Sjá meira