Þorgils til Svíþjóðar og fær sendingar frá Ólafi Sindri Sverrisson skrifar 15. maí 2023 14:00 Þorgils Jón Svölu Baldursson í leik í Evrópudeildinni í vetur, þar sem Valsmenn komust upp úr sínum riðli og í 16-liða úrslit. VÍSIR/HULDA MARGRÉT Línumaðurinn Þorgils Jón Svölu Baldursson hefur ákveðið að fara frá Val út í atvinnumennsku og hefur hann samið til tveggja ára við sænska handknattleiksfélagið Karlskrona.
Þorgils hefur tekið þátt í mikilli velgengni Valsmanna síðustu ár sem línu- og varnarmaður, en mun spila í sænsku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð. Karlskrona vann sig upp úr næstefstu deild nú í vor og hyggst blása til sóknar í efstu deild. Félagið verður með tvo Íslendinga því áður hafði félagið samið við stórskyttuna og landsliðsmanninn Ólaf Guðmundsson sem snýr aftur til Svíþjóðar frá Sviss í sumar. Þorgils er 25 ára gamall. Á heimasíðu Karlskrona er honum lýst sem harðskeyttum varnarmanni sem sé fljótur að snúa vörn í sókn. „Við erum ánægð með að geta tekið á móti Þorgils. Hann hefur staðið sig mjög vel bæði í íslensku deildinni og í Evrópudeildinni og við teljum að hann verði góð viðbót við okkar lið. Almennt séð eru íslenskri leikmenn tilbúnir að æfa stíft, tilbúnir að berjast fyrir öllu og með góðan grunn,“ segir Tobias Karlsson, íþróttastjóri Karlskrona, á heimasíðu félagsins. „Það er mjög ánægjulegt að skrifa undir til tveggja ára hjá Karlskrona,“ segir Þorgils. „Það var kominn tími til hjá mér að yfirgefa Ísland og það eru spennandi hlutir í gangi hjá Karlskrona. Upplifun mín af félaginu hefur verið mjög góð og það að Ólafur verði með hérna gerði ákvörðunina auðvelda. Ég hlakka til að klæðast svörtu treyjunni og berjast fyrir stigum í Karlskrona,“ sagði Þorgils.
Sænski handboltinn Valur Olís-deild karla Mest lesið Tottenham vill ekki láta kalla sig Tottenham Enski boltinn Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Handbolti ÍR heldur áfram að hrella liðin úr Bestu deildinni Íslenski boltinn Brentford bætti við algjöra martröð Leicester Enski boltinn Frakkar á toppinn fyrir slaginn við Ísland Fótbolti Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Handbolti Jón Dagur í frystiklefa í Berlín Fótbolti Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Handbolti Elísabet grátlega nærri því að fella heimsmeistarana í fyrsta leik Fótbolti „Ég hafði trú á því að þær gætu gert þetta betur“ Fótbolti Fleiri fréttir Áhugi Íslendinga heillaði: Ísak hafnaði Noregi til að herma eftir afa Gömlu Haukafélagarnir í stóru hlutverki í sitt hvoru landinu Uppgjörið og viðtöl: HK - KA 33-29 | HK steig stórt skref í átt að sæti í úrslitakeppninni Mögnuð tilþrif Viktors Gísla á topplista EHF Tveir nýliðar úr Haukum í landsliðinu „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Stór helgi að Hlíðarenda: Stefnan sett á undanúrslit Gríðarleg spenna á toppnum Orri Freyr magnaður þegar það leið yfir annan dómarann Kennir sjálfum sér um ófarir Gísla Haukar halda sér í toppbaráttunni Janus Daði öflugur í súru tapi Mögnuð Elín Klara þegar Haukar unnu Stjörnuna Elvar Örn öflugur og Melsungen áfram á toppnum Selfoss sá ekki til sólar á Hlíðarenda Íslendingalið Benfica og Gummersbach halda í vonina Þriðja landsliðskona liðsins orðin ófrísk Ýmir sneri aftur í góðum sigri Reynsluboltinn fann sér nýtt lið Gísli stórkostlegur í toppslagnum ÍBV vann Gróttu sem hefur beðið í 136 daga Óðinn Þór markahæstur að venju KA/Þór beint aftur upp í deild þeirra bestu Heimsmeistararnir gengu frá lærisveinum Guðjóns Vals „Vorum nokkurn veginn búnir að kortleggja þetta“ Uppgjörið: Haukar - Jeruzalem Ormoz 31-23 | Öruggt hjá Haukum gegn slöku slóvensku liði Valsmenn skoruðu 48 í Breiðholti Haukar töpuðu stórt í Tékklandi Framkonur stálheppnar að missa ekki sigurinn ÍR skellti í lás og fór upp fyrir Stjörnuna Sjá meira