Húsavík hefur ekki síst getið sér orð sem hvalaskoðunarbær landsins. Fjölskyldan skellti sér í siglingu og fylgdist með hvölum leika listir sínar. Þá fóru þau að sjálfsögðu í Sjóböðin á Húsavík þar sem er gullfallegt útsýni út á Skjálfanda.
Alexandra og Gylfi eru öflugt hjólreiðafólk. Á dögunum fóru þau á fjallahjólum að gosinu á Reykjanesskaganum og þá hefur sést til þeirra með aftanívagn svo dóttir þeirra geti verið með í hjólastuðinu. Hjólin voru að sjálfsögðu með í för á ferðalaginu norður.
Þau virðast svo hafa lokið ferð sinni um Norðurlandið á því að gista í glæsilegu sumarhúsi. Úr húsinu er fallegt útsýni yfir Eyjafjörðinn.
Alexandra Helga rekur verslunina Móa & Mía í Ármúla sem sérhæfir sig í barnafötum og barnaförum.
Gylfi Þór Sigurðsson er án samnings sem stendur og óvíst með feril hans sem knattspyrnumaður. Age Hareide, landsliðsþjálfari Íslands í fótbolta, vonast til að Gylfi snúi aftur á fótboltavöllinn sem fyrst.
„Ég veit ekki alveg hvað Gylfi vill gera núna því ég veit að hann hefur verið með Bandaríkin í huga líka. Ég hef talað við hann og hann myndi gjarnan vilja komast aftur í fótboltann,“ segir Hareide sem segir íslenska liðið þurfa á leikmanni eins og Gylfa að halda.
„Það yrði ótrúlega mikilvægt fyrir okkur og Ísland. Við værum að fá frábæran fótboltamann til baka. Það er mikilvægt því við höfum ekki úr svo mörgum að velja.“