Skoðun

Jöfnum leikinn

Oddný G. Harðardóttir skrifar

Vax­andi ójöfn­uð­ur á Ís­landi er stað­reynd. Póli­tískar ákvarð­anir ýta undir þá þróun. Það er hægt að snúa þessari þróun við ef pólitískur vilji leyfir. Ástæðurnar blasa við fólki sem skilur hvernig gott og öruggt samfélag virkar best fyrir flesta og sér á hvaða sviðum er brýnt að grípa til aðgerða. Þeirra aðgerða er ekki að vænta á vakt ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur enda gætir sú ríkisstjórn vel að sérhagsmunum fárra og vill ekki jafna leikinn.

Embætti landlæknis birti skýrslu í maí 2021 sem ber yfirskriftina Ójöfnuður í heilsu á Íslandi – Ástæður og árangursríkar aðgerðir til úrbóta. Þar segir m.a. að breytingum megi ná fram með stjórnvaldsaðgerðum sem eru utan heilbrigðiskerfisins. Skortur á fjárhagslegu öryggi og félagslegri vernd auk skorts á öruggu húsnæði og fullnægjandi búsetuskilyrðum hafi mest áhrif á heilsufarslegan ójöfnuð. Aðgerðir sem tryggja almenna menntun og fjárhagslegt öryggi ráði miklu. Aðgerðir innan heilbrigðiskerfisins einar og sér dugi ekki til að ná fram afgerandi breytingum á ójöfnuði í heilsu.

Að jafna stöðu barna ætti alltaf að vera forgangsmál. Framlög til menntunar allt frá leikskóla jafnar upphafið fyrir hvert barn og vinnur gegn því að ójöfnuður flytjist á milli kynslóða.

„Ungt fólk, sem ekki er fastráðið, þeir sem þurfa að annast aðra, fólk af erlendum uppruna og aldraðir eru líklegri til þess að búa við lélega heilsu sökum fátæktar. Fátækt í bernsku getur haft skaðleg áhrif á heilsu allt lífið. Útgjöld til félagslegrar verndar sem auka fjárhagslegt öryggi viðkvæmra hópa vegna örorku, fötlunar, atvinnuleysis ofl. auka heilsufarslegan jöfnuð“ segir í skýrslunni. Þar segir enn fremur: „Bágborin búsetuskilyrði eru nátengd vanheilsu enda eru þeir sem eru húsnæðislausir, búa í lélegu eða óöruggu húsnæði eða húsnæði sem þeir hafa ekki efni á, líklegri til þess að vera við lélega heilsu“

Nýlegar upplýsingar frá forsætisráðuneytinu um fátækt á Íslandi sýna að tæplega 48 þúsund einstaklingar lifa hér á tekjum undir lágtekjumörkum. Um níu þúsund börn búa við fátækt. Heildarkostnaður samfélagsins vegna fátæktar er áætlaður 31 til 92 milljarðar króna.

Barnabætur og húsnæðisstuðningur eru mjög öflug jöfnunartæki. Beita þarf þeim tækjum strax af styrk til að vinna gegn ójöfnuði. Ekki síst nú um stundir þegar stýrivextir eru orðnir helmingi hærri hér á landi en í þeim ríkjum sem við viljum bera okkur saman við. Svo háir vextir bitna harkalega á ungum fjölskyldum sem nýlega hafa keypt sína fyrstu íbúð. Aukið framboð á húsnæði á viðráðanlegu verði þarf augljóslega að vera til staðar til að vinna á húsnæðisvanda til framtíðar.

Síðast en ekki síst verður að beita skattkerfinu með skilvirkum hætti til að afla tekna en einnig til að vinna gegn ójöfnuði. Ávinningurinn fyrir samfélagið allt er fólginn í betri andlegri og líkamlegri heilsu almennings. Það er þess virði að jafna leikinn.

Höfundur er þingmaður Samfylkingarinnar og fyrrverandi fjármálaráðherra.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×