Legósafnið telur yfir fimm hundruð Legosett, af öllum stærðum og gerðum, og eru þau elstu frá árunum 1935 til 1940.
Pétur Breiðfjörð Pétursson, Legosafnari, byrjaði að safna af viti fyrir ellefu árum þegar elsta dóttir hans fór til Danmerkur. Hún hafi sent honum eitt og eitt sent og þannig hafi boltinn farið að rúlla.
Elsti gripur safnsins 80 ára gamall
Pétur segist alltaf hafa verið mikill Legokall og hann hafi átt fullt af settum uppi í hillum en með sendingum dótturinnar hafi söfnunin hafist fyrir alvöru. Eitt Lego vakti sérstaka athygli en það var fremur óhefðbundið enda elsta Legoið í safninu en það var trébátur.
„Báturinn er frá árunum 1935 til 1940 þegar Lego byrjaði að smíða og byrjaði með tréleikföng og svo hægt og rólega fóru þeir út í plastið,“ útskýrir Pétur.
Legosettin sem Pétur hefur sett saman eru af öllum stærðum og gerðum og segir Pétur mesta vinnu hafa farið í Eiffel turninn. „Hann er 1,50 á hæð, tíu þúsund og einn kubbur nákvæmlega og nokkuð margar kvöldstundir.“

Þar á eftir komi Títanik skipið sem er engin smá smíði. Skipið er í þremur hlutum sem hægt er að taka í sundur til að skoða vélarrými skipsins.
Pétur segir fyrsta Legobílinn vera í sérstöku uppáhaldi. „Ég fékk hann 1981 um jólin og þetta er svona fyrsti stóri bíllinn sem ég fékk. Hann var settur saman þá og hefur verið uppi í hillu síðan.“
Aðspurður hvað sé skemmtilegast við að setja saman Lego segir Pétur núvitundina. „Að vera dúttla í þessu við eldhúsborðið og setja saman,“ segir Pétur.