Frá þessu segir í tilkynningu á vef Vinnumálastofnunar.
Þar segir að 21 starfsmanni hafi verið sagt upp í farþegaflutningum, nítján í ferðaþjónustu, tuttugu á dvalarheimili aldraðra og ellefu starfsmenn í þvottahúsi. Greint var frá því á dögunum að á fjórða tug starfsmanna Grundarheimilanna hafi verið sagt upp, þar með talið öllu starfsfólki á Þvottahúsi Grundarheimilanna og svo í ræstingadeild á Ási, hjúkrunar-og dvalarheimili Grundar í Hveragerði.
Veistu meira um málið? Vísir tekur við öllum ábendingum á netfangið ritstjorn@visir.is eða í tölvupósti á einstaka blaðamenn. Fullum trúnaði er heitið.
Fram kemur að hópuppsagnirnar nú komi flestar til framkvæmda í desember 2023.
Tvær tilkynningar um hópuppsagnir bárust Vinnumálastofnun í ágúst þar sem 52 starfsmönnum var sagt upp störfum. Voru þar um að ræða uppsagnir hjá Skaganum 3X á Ísafirði og svo upplýsingatæknifyrirtækinu Grid.
Með hópuppsögn er átt við uppsagnir atvinnurekanda á fastráðnum starfsmönnum þar sem fjöldi starfsmanna sem sagt er upp á þrjátíu daga tímabili er að minnsta kosti 10 starfsmenn í fyrirtækjum sem venjulega hafa 21-99 í vinnu, minnst 10% starfsmanna í fyrirtækjum með 100-299 í vinnu eða minnst 30 starfsmenn þar sem venjulega eru 300 eða fleiri.