Fyrsta fyrirtækjaheimsókn Vertonet fór fram hjá Sýn á dögunum en yfir sjötíu konur úr tæknigeiranum sóttu viðburðinn.
Vertonet eru samtök kvenna í upplýsingatækni sem leggja áherslu á að skapa vettvang fyrir konur í margvíslegum störfum innan tæknigeirans.
Rebekka Jóelsdóttir, Jóhanna Guðmundsdóttir og Hulda Hallgrímsdóttir í góðum félagskap.Hulda Margrét
„Viðburðurinn fór fram í húsakynnum Sýn að Suðurlandsbraut. Þar tóku til máls þær Hulda Hallgrímsdóttir framkvæmdarstjóri nýsköpunar og reksturs, Snjólaug Haraldsdóttir deildarstjóri hönnunar, gagna og öryggis, Karen Sif Viktorsdóttir deildarstjóri hugbúnaðarþróunar, Kristjana Thors sjónvarpslausna og Díana Dögg Víglundsdóttir tæknilegur vörustjóri stafrænna dreifileiða sem kynntu fyrirtækið og þá tæknilegu breytingar- og sóknarvegferð sem Sýn er á,“ segir í tilkynningu frá Vertonet.
Díana Dögg Víglundsdóttir, vörustjóri stafrænna dreifileiða hjá Sýn var á meðal þeirra sem hélt erindi.Hulda Margrét
Þess má geta að Vertonet heldur úti hlaðvarpi þar sem tekin eru skemmtileg og fróðleg viðtöl við konur í tækni, farið yfir þeirra bakgrunn og störfin innan tæknigeirans á Íslandi.
Vísir er í eigu Sýnar.
Viðburðurinn fór fram í höfuðstöðvum Sýnar að Suðurlandsbraut.Hulda MargrétKaren Sif Viktorsdóttir, Rakel Norðfjörð, Kristjana Thors.Hulda MargrétDiljá Þorkelsdóttir, Helga Sigríður, Edit Ómarsdóttir, Hrefna Arnardóttir og Auður Inga EinarsdóttirHulda MargrétKristjana Thors Brynjólfsdóttir, Hulda Hallgrímsdóttir, Snjólaug Haraldsdóttir, Díana Dögg Víglundsdóttir og Karen Sif Viktorsdóttir.Hulda MargrétBryndís Arna Borgþórsdóttir, María Builien Jónsdóttir og Snjólaug HaraldsdóttirHulda Margrét