Veitingastaðurinn og bakaríið Bakabaka hlaut tilnefningu frá Reykjavik Grapevine sem besta pítsan í Reykjavík árið 2023.Elísabet Blöndal
Veitingastaðurinn og bakaríið Bakabaka fagnaði titlinum, besta pítsan í Reykjavík 2023, á dögunum með pompi og prakt. Viðurkenningin var veitt af menningartímaritinu Reykjavik Grapevine.
Bakabaka var valinn besti nýliðinn í fyrra en hreppti titilinn í ár eftir að Flatey pítsa bar sigur úr býtum síðastliðin fjögur ár.
Góð pítsa ekki flókin
Fjöldi gesta mættu og samfögnuðu staðnum í dýrindis pítsuveislu og hlustuðu á vel valin lög DJ. Ívars Péturs.
En hvert er leyndarmálið á bakvið bestu pítsu Reykjavíkur?
„Góð pítsa er nú ekki flókin. Fullkominn botn, bakaður á eldi með bestu mögulegu tómötum á toppinn,“ segir Ágúst Fannar Einþórsson, eða Gústi bakari, einn af eigendum BakaBaka.
Hann segir uppskriftina enn í mótun til að fá pítsuna ennþá betri.
„Við sækjum tómatana frá Sikiley sem heita siccagno. Þeir eru alveg stórmerkilegir, með einstakt tómatabragð, frekar litlir með mjög þykkt hýði og vaxa nánast án vatns. Heimamaðurinn kallar þá Red gold of sicily en ég kalla þá bara tómata,“ segir Gústi.
Þá buðu Vínstúkan Tíu sopar og Rætur og vín upp á afbragðs náttúruvín sem rann ljúffenglega niður kverkar veislugesta.
Líkt og meðfylgjandi myndir gefa til kynna skemmtu gestir sér einstaklega vel og fóru saddir heim.
Erna Bergmann og Árni Vilhjálmsson.Elísabet BlöndalDagny Berglind Gísladóttir og Börkur Davíðsson.Elísabet BlöndalÁgúst Fannar Einþórsson, Gústi bakari.Elísabet BlöndalBergsteinn Jónsson og Sylvía Þorvaldsdóttir. Elísabet BlöndalGuðbjörg Friðriksdóttir og Ævar Österby. Elísabet BlöndalElín Árnadóttir og Viktor Pétursson. Elísabet BlöndalBirgir Ísleifur Gunnarsson og Erna Bergmann. Elísabet BlöndalStefán Darri Þórsson, Eva Dögg Rúnarsdóttir og Sólgerður Lúna Stefánsdóttir. Elísabet BlöndalHildur Þórhallsdóttir og Hafliði Pétursson. Elísabet BlöndalAndrea Rún Carlsdóttir, Helga Snjólfsdóttir, Bella Morgan, Bjarni Lúðvíksson, Soffía Hjörvarsdóttir og Stefán Eyjólfsson. Elísabet BlöndalBjörn Steinar Jónsson, Björn Árnason, Hrefna Sætran og Íris Laxdal. Elísabet BlöndalRannveig Kristjánsdóttir og Hildur Yeoman. Elísabet Blöndal Elísabet BlöndalNíels Níelsson, Gústi bakari og Bastían Nói Ágústsson. Elísabet BlöndalTvær gómsætar pizzur. Elísabet BlöndalMargt var um manninn í veislunni.Elísabet BlöndalDaníel Kristjánsson og Sara Geirsdóttir. Elísabet BlöndalNáttúruvín voru á boðstólnum.Elísabet BlöndalRakel Tómasdóttir og Rósa María Árnadóttir. Elísabet BlöndalKristín Kristinsdóttir og Sturla Már Björnsson. Elísabet BlöndalBella Morgan og Tanja Geirmundsdóttir.Elísabet BlöndalSólgerður Lúna Stefánsdóttir, Eva Dögg Rúnarsdóttir og Hrefna Sætran.Elísabet Blöndal