Í tilkynningu Festi til kauphallar segir að í ljósi betri afkomu á fjórðungnum en áætlanir gerðu ráð fyrir og uppfærðri spá stjórnenda fyrir fjórða ársfjórðung 2023 þá hafi EBITDA-spá félagsins fyrir árið 2023 verið hækkuð úr 9.750 – 10.250 milljónum króna í 10.400 – 10.800 milljónir króna.
Festi muni birta uppgjör sitt fyrir 3. ársfjórðung 2023 eftir lokun markaða miðvikudaginn 25. október næstkomandi. Afkomufundur fyrir markaðsaðila verði haldinn fimmtudaginn 26. október 2023 kl. 8:30 í höfuðstöðvum félagsins að Dalvegi 10 – 14 í Kópavogi.