Mál þeirra snýst meðal annars um hvar sjálf deilan á sér stað, í Kaliforníu-ríki eða Texas-ríki Bandaríkjanna. Business Insider fjallar um málið.
Grimes flutti til Kaliforníu í haust og í kjölfarið stefndi Musk henni í Texas, þegar honum varð ljóst að flutningar hennar voru ekki tímabundnir. Grimes brást við og fór í gagnsókn í Kaliforníu.
Bent hefur verið á mögulega ástæðu þess að Musk og Grimes deila um í hvaða ríki málið á að fara fram. Meðlagsgreiðslur fyrir þrjú börn eru að hámarki 2760 dollarar á mánuði í Texas, en í Kaliforníu er ekkert lagalegt hámark. Þess má geta að Musk er talinn vera ríkasti maður heims.
Business Insider bendir þó á að ekki sé víst að forsjármál þeirra endi með meðlagsgreiðslum.
Í áðurnefndri stefnu Grimes kemur fram að þau deili forræði barna sinna til helminga. „Við búum á sitthvorum staðnum, en erum enn saman,“ segir í dómsskjalinu. „Forsjármálið getur þó verið flókið því ég starfa í San Fransisco, en hann í Texas. Við reynum eins og við getum að verja tíma í borgum hvers annars.“
Musk krefst þess í stefnu sinni að Grimes taki börn sín aftur til Texas. Jafnframt krefst hann þess að hann einn verði tímabundið gerður að forsjáraðila barnanna.
Business Insider hefur eftir sérfræðingi í forsjármálum að slík krafa sé einkennileg ef ekki eru uppi áhyggjur um hæfni hins einstaklingsins sem foreldri, líkt og ef grunur er um vanrækslu á börnum eða fíkniefnamisnotkun.
Í kröfu Musk er lagt til að Grimes fái að hitta börnin aðra hverja helgi, einn mánuð á sumrin og um einhverja hátíðisdaga.
Þar að auki leggur hann til að þegar Grimes sé með börnunum verði það alltaf í Travis-sýslu í Texas-ríki. Sérfræðingur Business Insider segir þá tillögu mjög sérstaka þar sem að Grimes myndi annað hvort neyðast til að flytja til Texas, eða vera sífellt á ferðinni.