Stjörnum prýtt lið Al Ittihad fékk skell og féll úr leik Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 15. desember 2023 19:58 Karim Benzema misnotaði vítaspyrnu í kvöld. Robbie Jay Barratt - AMA/Getty Images Sádiarabíska liðið Al Ittihad, með menn á borð við Karim Benzema og N'Golo Kante innanborðs, er úr leik í heimsmeistarakeppni félagsliða eftir 3-1 tap gegn egypska liðinu Al Ahly í kvöld.
Ali Maaloul kom Al Ahly yfir með marki úr vítaspyrnu á 21. mínútu áður en Karim Benzema klikkaði á vítaspyrnu á hinum enda vallarins á síðustu mínútu venjulegs leiktíma í fyrri hálfleik og staðan var því 1-0 þegar flautað var til hálfleiks og liðin gengu til búningsherbergja. Hussein El Shahat tvöfaldaði forystu Al Ahly á 59. mínútu og aðeins þremur mínútum síðar var staðan orðin 3-0 eftir mark Emam Ashour. Egyptarnir þurftu svo að leika seinustu mínútur leiksins manni færri eftir að Anthony Modeste fékk að líta beint rautt spjald á 90. mínútu fyrir olnbogaskot, aðeins þremur mínútum eftir að hann hafði komið inn á sem varamaður. Al Ittihad nýtti sér liðsmuninn og Karim Benzema klóraði í bakkann fyrir liðið á 92. mínútu, en þá var það orðið of seint og niðurstaðan varð 3-1 sigur Al Ahly sem er á leið í undanúrslit heimsmeistaramótsins á kostnað Al Ittihad. Al Ahly mætir brasilíska liðinu Fluminese í undanúrslitum, en í hinum undanúrslitunum mætast Urawa Reds frá Japan og Englandsmeistarar Manchester City.
Fótbolti Mest lesið Meistararnir gefa Trump „risastórt nei“ Sport Luka Doncic líklega á leið til Íslands í sumar Körfubolti Berjast um að fá Ísland til sín á EM: „Viljum fá eitthvað á móti“ Körfubolti Elvar og Martin: Hvernig þetta byrjaði, hvernig þetta gengur Körfubolti „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ Enski boltinn Sló rúmlega tuttugu ára gamalt Íslandsmet Sport Sár Verstappen hótar sniðgöngu Formúla 1 „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Enski boltinn Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang Fótbolti „Þetta er stærra en að vinna einhverja titla“ Körfubolti Fleiri fréttir Hundur í Messi: Kleip í háls aðstoðarþjálfara Sturridge vildi að Guardiola setti Haaland inn á í hálfleik Metin sex sem Salah setti í gær Fyrsta barnabarn Cantona heitir Cesar Gerrard orðaður við endurkomu til Rangers Liðsfélagi Alberts laus af spítala „Titilbaráttan er búin, Liverpool verður meistari“ „Verður besta tímabil sem við höfum séð frá leikmanni“ Özil búinn að finna sér nýjan starfsvettvang „Spiluðum mjög vel í dag“ Dómara refsað vegna samskipta við Messi Orri og félagar blanda sér í Evrópubaráttuna Góðir útisigrar hjá PSG og Juventus „Við þurfum annan titil“ Öruggur sigur Akureyrarkvenna í Lengjubikarnum Magnaðir Bæjarar áfram í toppmálum Salah frábær og Liverpool í kjörstöðu Jöfnuðu erkifjendurna að stigum á toppnum Tap gegn botnliðinu eftir sigurinn á Víkingum Breki Baxter kórónaði endurkomu Eyjamanna Blikakonur áfram á fullu skriði í Lengjubikarnum KR-ingar áfram á mikilli sigurgöngu undir stjórn Óskars Hrafns Skoruðu fjögur mörk á ellefu mínútna kafla Haaland ekki í hópnum á móti Liverpool Mikael með Mo Salah frammistöðu í sigri Ísak tryggði jafntefli á síðustu stundu Vann Arsenal og tók síðan bara lestina heim Áfall fyrir Napoli í titilbaráttunni Liverpool væri á sömu slóðum og Man. Utd án Mo Salah Íslendingur meðal yngstu markaskorara í sögu Evrópukeppnanna Sjá meira