Eigendur hússins eru hjónin Rut Helgadóttir og Jóhann Ögri Elvarsson. Rut er dóttir Helga Vilhjálmssonar, sem oft er kenndur við Góu og skyndibitakeðjuna KFC.
Húsið er 263 fermetra með góðri lofthæð og einstöku útsýni.

Á efri hæð hússins er stórt og bjart alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúsi. Í stofu eru stórir gólfsíðir gluggar og aukin lofthæð. Þaðan er útgengi á rúmgóðar svalir sem snúa í suðvestur.
Dökk eikar innrétting prýðir eldhúsið með stein á borðum og góðri eyju með góðri vinnuaðstöðu.

Líkt og meðfylgjandi myndir sýna er húsið fallega innréttað á mínimalískan máta þar sem mublum eftir þekkta hönnuði fá að njóta sín.
Þar má nefna Eggið hannað af danska hönnuðinum Arne Jacobsen, Mammoth- chair og skemill í svörtu leðri eftir dönsku hönnuðina, Knut Bendik Humlevik og Rune Krøjgaard, sem prýða stofuna.
Í eldhúsinu eru fjórir klassískir Eames stólar í svörtu, hannaðir af hjónunum Ray og Charles Eames.


Nánari upplýsingar um eignina má finna á fasteignavef Vísis.