Fullyrt er að stjórnendur og stjórnarmeðlimir fyrirtækja Musk, á borð við SpaceX og Tesla, hafi áhyggjur af fíkniefnanotkuninni.
Musk neyti efnanna gjarnan í einkapartýjum um víða veröld. Í umræddum samkvæmum séu gestir oft látnir skrifa undir trúnaðarsamninga, eða símar þeirra gerðir upptækir á meðan á gleðskapnum stendur.
Sem dæmi fullyrðir Wall Street Journal að Musk hafi tekið nokkrar töflur af LSD í partýi sem hann hélt sjálfur í borginni Los Angeles árið 2018.
Hann hafi neytt ofskynjunarsveppa ári seinna í teiti í Mexíkó. Og árið 2021 hafi Elon, ásamt bróður sínum Kimbal Musk, notað ketamín í Miami borg.
Neyti enn fíkniefna
Haft er eftir heimildarmönnum sem eru nánir auðkýfingnum að fíkniefnanotkunin sé enn í fullum gangi, sérstaklega neysla hans á ketamíni.
Umræddir heimildarmenn óttist að haldi fram sem horfi muni það hafa skaðleg áhrif á heilsu auðjöfursins. Hvort sem það gerist eða ekki, þá sé jafnframt óttast um að neyslan skemmi fyrir fyrirtækjum og viðskiptum Musk.
Til að mynda er bent á að neysla Musk gæti brotið í bága við samninga fyrirtækja hans við hið opinbera í Bandaríkjunum, og þar með haft áhrif á samninga SpaceX við bandaríska ríkið sem varða milljarða Bandaríkjadala, og tugþúsundir starfa.
WSJ verra en TMZ
Wall Street Journal segist hafa reynt að ná tali af Musk en án árangurs. Lögmaður á hans vegum fullyrðir þó að Musk hafi farið í regluleg jafnt sem handahófskennd lyfjapróf hjá SpaceX, og að hann hafi staðist þau öll. Lögmaðurinn fullyrti jafnframt að í umfjöllun Wall Street Journal væri að finna fjölda staðreyndavilla, en miðillinn bendir á að hann bendi ekki á hverjar þær séu.
Líkt og áður segir hefur Musk gefið lítið fyrir Wall Street Journal og umfjöllun miðilsins.
Musk gefur sjálfur lítið fyrir umfjöllunina og fullyrti á samfélagsmiðli sínum X í dag að gæðakröfurnar hjá Wall Street Journal væru minni en hjá æsifréttamiðlinum TMZ.