Bobi tók metið af ástralska nautgripahundinum Bluey sem var 29 ára þegar hann drapst árið 1939. Eftir að hafa hrifsað metið til sín átti Bobi svo eftir að lifa í tvö ár til viðbótar.
Hér fyrir neðan má sjá frétt Stöðvar 2 frá því Bobi fagnaði meintu 31 árs afmæli sínu.
31 ár kann að hljóma ekki svo mikið, en þegar miðað er við hina klassísku formúlu að eitt ár fyrir hunda sé líkt og sjö ár hjá mönnum, má ætla að Bobi hafi verið 217 ára gamall í mannaárum þegar hann drapst. Eða hvað?

Eftir að Bobi fékk heimsmetið fóru fleiri og fleiri að efast um aldur hans. Til að mynda voru loppur hans öðruvísi á litinn en á mynd sem eigandi hans sagði vera af Bobi frá árinu 1999. Vildu þeir meina að mögulega væri um annan hund að ræða á myndinni.
Ekki hjálpaði það Bobi að aldur hans var einungis staðfestur af eigendum hans. Hann var settur í aldursgreiningu sem sýndi fram á að hann væri vissulega eldri en flestir hundar, en gat greiningin ekki staðfest hversu gamall hann væri.
Nú hafa samtökin Royal College of Veterinary Surgeons gefið út að þau trúi því ekki að Bobi hafi náð 31 árs aldri. Heimsmetabók Guinness ákvað því að rannsaka þyrfti mál Bobis. Á meðan er Bluey aftur orðinn elsti hundur sögunnar og elsti núlifandi hundur heims er chihuahua hundurinn Spike.