Skoðun

Veljum að skapa

Sigríður Hrund Pétursdóttir skrifar

Lífið er að mörgu leyti stangarstökk. Við erum sífellt að æfa okkur að gera betur – eiga góða taktfasta, en sporlétta atrennu, ná skriðþunga sem lyftir okkur upp og yfir ránna sem sífellt virðist hækka óumbeðið. Sumar atrennur ná aldrei takti og stöngin kemst hreinlega ekki í blökkina. Glatað tækifæri. Hvað gerum við þá?

Við erum sem blaktandi hæglætisfáni, bundin styrkum kjarnyrtum stofni, bylgjumst í mjúkum andvara – alveg sama hvernig viðrar. Því við veljum að rísa upp og rísa yfir. Við veljum að opna hjörtu okkar í óttaleysi, minnug þess hvað forforeldrar okkar þurftu að leggja á sig til að koma okkur hingað. Við erum framúrskarandi hæf til að skapa stóran hluta okkar tilveru – með því að velja.

Val er vald. Viðhorf er ennfremur val. Þar sem orð eru til alls fyrst er ágætt að nýta tungumálið okkar, okkur til framdráttar og til að tala fallega í hvers annars garð og ekki síst til okkar sjálfra. Mildi og styrkur eiga vel við. Orðin eiga þó ávallt uppruna sinn að rekja til hugsunar. Hugsum, tölum og hegðum okkur í Kærleika. Kærleikurinn lifir allt. Kærleikurinn er mestur, er óháður trúarbrögðum en finnst í þeim öllum, flæðir sem stórfljót á hálendi og finnur sér alls staðar og endalaust nýja farvegi rísi hindranir upp. Hið stórkostlega kraftaverk er að undan óttaleysi og kærleika rennur sköpunargleði sem heitur bullandi hver á hálendinu.

Framtíðin er björt og það er okkar að velja í vitund okkar sjálfsköpuðu örlög. Með valkvæða samstöðu samfélagi okkar til skjaldborgar um áunnin mannréttindi – lýðræði, tjáningarfrelsi og jafnræði – er okkur ekkert að vanbúnaði að hlaupa síendurtekið atrennur með upprétta stöng, telja í okkur kjark „þú getur þetta, þú getur þetta, þú getur þetta“, hlaupa í takti við orðin og hjartað, stíga stórt lokaskref og lyfta okkur upp og yfir síhækkandi ránna með tækni, krafti og einbeittum sigurvilja.

Við gerum okkar besta – og aðeins betur – en það er það sem þarf.

Höfundur er forsetaframbjóðandi, fjárfestir og fyrrum formaður FKA.

Viðbót – greinin er samin með innblæstri frá afrekum Völu Flosadóttur. Árið 2000 náði Vala 3. sæti á Ólympíuleikunum í Sydney með stökki upp á 4,5 metra. Með stökkinu setti hún jafnframt Íslands- og Norðurlandamet. Hún varð fyrst íslenskra kvenna til að vinna til verðlauna á Ólympíuleikum. Vala var kjörin Íþróttamaður ársins árið 2000. Afreksferill Völu er glæsilegur, en Vala hætti keppni árið 2004. Þakklæti fyrir framúrskarandi árangur.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×