Skoðun

Meiri­hluti á blá­þræði

Guðmundur Árni Stefánsson skrifar

Bæjarstjórnarmeirihluti, Sjálfstæðisflokksins og Framsóknarflokks, Í Hafnarfirði hékk á bláþræði í gær, fimmtudaginn, 7.febrúar. Ástæðan var andstaða fulltrúa Sjálfstæðisflokksins við það hliðarákvæði kjarasamninga, að börnum í grunnskólum yrði boðnar gjaldfrjálsar máltíðir í skólum. Það vildi Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði ekki. Fulltrúi Framsóknar studdi málið. Samfylkingin hafði forystu í málinu; komu því á dagskrá og knúðu fram samþykkt þess að lyktum. Ferill málsins var eftirfarandi: Bæjarráðsfulltrúar Samfylkingarinnar - Jafnaðarflokks Íslands, fluttu tillögu þess efnis á nefndum bæjarráðsfundi að morgni fimmtudagsins, að Hafnarfjarðarbær styddi heilshugar gjaldfrjálsar máltíðir og eins að bærinn myndi lækka verulega gjaldskrár sínar; úr 9,9% hækkun sem meirihlutinn samþykkti við gerð fjárhagsáætlunar í desember, í 3,5 á yfirstandandi ári. Þetta er í samræmi við óskir aðila vinnumarkaðarins og enda markmiðið að ná niður verðbólgu - og langþráðum stöðugleika. Jafnaðarmenn styðja heilshugar þessa nálgun. 

Uppákoma íhaldsins 

En þá varð fjandinn laus í Hafnarfirði. Fulltrúar Sjálfstæðisflokksins með bæjarstjórann í broddi fylkingar fannst tillagan ómöguleg. Fulltrúi Framsóknar fannst þetta hins vegar skynsamleg nálgun, enda framsóknarmenn um allt land umhugað um að samningar næðust á þessum nótum. Óskað þá bæjarstjóri eftir fundarhléi til að freista þess að halda meirihlutanum saman. Það fundarhlé stóð í hálfa aðra klukkustund. Og í kjölfar þess óskaði bæjarstjórnarmeirihluti þessara flokka eftir því að fundinum yrði frestað í rúmar fimm klukkustundir til að meirihlutanum gæfist ráðrúm til að ná áttum og finna lausnir. Það gekk eftir og þegar fundur hófst að nýju eftir þessar rúmu 5 klukkustundir, hafði Framsókn tekist að beygja Sjálfstæðisflokkin. Þá samþykkti Sjálfstæðisflokkurinn frían mat í skólum. Sem hann hafði verið á móti fyrr á deginum! 

En auðvitað gat Sjálfstæðisflokkurinn ekki samþykkt tillögu jafnaðarmanna - það mátti ekki. En suðu saman aðra tillögu sem var efnislega nákvæmlega eins og tillaga jafnaðarmanna. Samþykktu að lækka gjaldskrár og fríum skólamat lofað. Enda mun ríkissjóður standa straum af stærstum hluta kostnaðar við skólamatinn. 

Nei að morgni og já síðdegis

En þessi biti var beiskur og stór til að kyngja fyrir sjálfstæðismenn; að láta jafnaðarmenn og framsókn beygja sig í duftið. Og óyndi flokksins vegna niðurlægingar hans. birtist í því að skamma Samfylkinguna!! Bæjarstjóri og oddviti íhaldsins bókaði að undirritaður, höfundur þessarar greina, oddviti Samfylkingarininar í Hafnarfirði, hafi brotið trúnað!! Og í hverju átti það trúnaðarbrot að vera fólgið? Jú, í því að segja almenningi og fjölmiðlum frá því að Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði hefði verið á móti tillögu um frían skólamat á bæjarráðsfundi um morguninn. En svo samþykkja þá ráðstöfun að kvöldi til að halda höktandi meirihluta á lífi - enn um sinn. Nei, það verður aldrei leyndarmál og á ekki að vera það, að Sjálfstæðisflokkurinn í Hafnarfirði var eins og fjúkandi lauf á þessum margskipta og einstæða bæjarráðsfundi í gær. Þess ber einnig að geta, að fríar máltíðir í grunnskólum, er að finna í málefnasamningi þessa meirihluta. Sem gerir þessa andstöðu Hafnarfjarðaríhaldsins enn óskiljanlegri. 

Ragnar Reykás í Hafnarfirði

Það er margt skrýtið í kýrhausnum og ekki að undra að almenningur skilji stundum lítið í flækjum stjórnmálanna. Þessi uppákoma í pólitíkinni í Hafnarfirði í gær, er svo sannarlega þeirrar gerðar. Svona eins konar Hafnarfjarðarbrandari íhaldsins. Það má finna Ragnar Reykás víða. Hann var í Hafnarfirði í gær í gervi Sjálfstæðisflokksins. Þar var hann móti máliinu að morgni dags, en svo með því með að síðdegis.

Höfundur er oddviti Samfylkingarinnar - Jafnarflokks Íslands í Hafnarfirði.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×