Bjarki ræddi veikindi sín á opinskáan hátt þegar hann tók þátt í fjáröflunarátaki Krafts fyrr á þessu ári. Bjarki greindist með ristilkrabbamein árið 2022 þá 35 ára gamall og hafði þá verið með sáraristilbólgu í sautján ár og lifað með því. Við það tilefni lýsti Bjarki því að hann hefði verið opinskár með veikindi sín svo fólk vissi hvað væri í gangi.
Bjarki var líka liðsfélagi körfuboltaliðs Álftaness. Hans var minnst með mínutu löngu klappi fyrir leik liðsins gegn Hetti í byrjun mánaðarins. Bjarki lést á heimili sínu í faðmi fjölskyldu sinnar þann 20. mars síðastliðinn en hann skilur eftir sig eiginkonu, Guðrúnu Ástu Ólafsdóttur, og tvö börn, þau Heiðrúnu Bjarkadóttur, tíu ára, og Ólaf Þór Bjarkason, átta ára.
Bjarki var uppalinn á Stokkseyri, lagði stund á nám við Fjölbrautaskóla Suðurlands á sínum tíma og spilaði körfubolta með uppeldisfélagi sínu, Þór Þorlákshöfn, um langa hríð og Álftanesi frá árinu 2022. Hann stundaði veiðar og naut sín mikið í útivist og ævintýrum ýmisskonar, var vinamargur og þeir sem þekktu til hans hafa lýst honum sem einstaklega lífsglöðum, vini vina sinna og frábærum liðsfélaga sem lét ekkert stoppa sig í að lifa lífinu til fulls alla tíð.
Einvalalið á tónleikunum
„Hann var ótrúlega æðrulaus og ætlaði sér bara ekki að tapa þessu og fór bara í gírinn,“ segir Arnar Pétursson gítarleikari í Mammút og fjölskylduvinur sem er einn þeirra sem skipuleggja tónleikana næsta miðvikudagskvöld. Hann segir sögu Bjarka alla tíð hafa staðið sér nærri en Arnar er með Crohn's sjúkdóminn, sem er af sama meiði og sáraristilbólga.
„Maður er líka sjálfur fjölskyldumaður, með þrjú börn og setur sig í þessi spor Bjarka, að deyja þarna frá fjölskyldunni sinni, sem svo í ofanálag þarf að hafa áhyggjur af peningavandræðum vegna einhverra tryggingamála, sem er náttúrulega bara glatað,“ segir Arnar en vegna þess að hann var með sáraristilbólgu og hafði verið með um margra ára skeið gat Bjarki aldrei líftryggt sig.

Tónleikarnir fara fram á Sviðinu á Selfossi á miðvikudagskvöld 17. apríl og hefjast klukkan 19:00. Allir sem koma að tónleikunum gefa vinnu sína, ekki einungis þeir listamenn sem koma fram heldur meðal annars einnig þeir sem standa að Sviðinu og sjá um tæknimál, skreytingar og veitingar. Miðasala fer fram á vef Sviðsins.
Meðal þeirra sem fram koma á tónleikunum verða Diljá Péturs, Guðrún Árný og Júlí Heiðar. Arnar segist hvetja alla sem geta til þess að mæta eða leggja fjölskyldunni lið með öðrum hætti og nefnir að til viðbótar tónleikunum munu Þór Þorlákshöfn og Álftanes efna til vináttuleikjar til styrktar fjölskyldunni í maí næstkomandi.
Söfnunarreikningurinn hér að neðan er á nafni Guðrúnar Ástu, eiginkonu Bjarka, og er tekið þar við frjálsum framlögum.
Reiknisnr. 0370-26-048318
Kt. 080390-2039
Aur: 868-1930

Eftirtaldir koma fram á tónleikunum ásamt frábæru úrvali hljóðfæraleikara:
Diljá Pétursdóttir
Júlí Heiðar
Guðrún Árný
Gunni Óla
Þórir Geir
Fríða Hansen
Hara systur ásamt Arnari Mammút og Einsa made in sveitin
Dúett - Opera Comedy
Sædís Lind
Anna María
Dagný Sif
Heiðrún Bjarkadóttir