Hér má sjá tónlistarmyndbandið:
Tónlistin öflugt verkfæri fyrir tilfinningar
Trausti byrjaði að fikta í tónlist í kringum fjórtán ára aldurinn eftir að bróðir hans kynnti hann fyrir tónlistarforriti.
„Árið 2016 byrjaði ég síðan að semja tónlist ásamt Birki Leó og Guðmundi Sverris vinum mínum. Þeir hjálpuðu mér að taka mín fyrstu skref í tónlistinni og kenndu mér helling.“
Trausti er óhræddur við berskjöldun í sinni textasmíð.
„Innblástur minn til að skapa tónlist hefur alltaf komið frá tilfinningalegum stað. Það að geta samið verk sem nær utan um það hvernig mér líður hjálpaði mér að opna á hluti sem ég var búin að birgja innra með mér lengi.
Tónlistin hefur hjálpað mér mikið með að geta tjáð mig um erfiðar tilfinningar og erfiða tíma sem endurspeglast í textunum mínum. Þótt mikið af þessum textum muni líklega aldrei líta dagsins ljós finnst mér samt mikilvægt að rita þá niður.“

Vann mikið í sjálfum sér
Trausti tók sér langa pásu frá tónlist en fékk svo hugmynd að laginu Gömul tár.
„Ég breytti um umhverfi, vann mikið í sjálfum mér og kom mér á betri stað en ég var á fyrir nokkrum árum. Lagið fjallar um að gefa lífinu tíma og sjálfum sér líka. Það eina sem maður getur virkilega bætt í lífinu er maður sjálfur. Lífið er enginn dans á rósum eins og ég hef heyrt.“

Hann segist strax hafa vitað að hann vildi gera tónlistarmyndband við lagið og vann það ásamt Ívari Fannari og Sindra Jó.
„Mig langaði til þess að koma laginu í myndrænt form og sýna fegurð náttúrunnar í Grenivík. Við pökkuðum í bílinn og lögðum af stað með nokkur ljós, myndavél og auka fatnað fyrir komandi daga. Aðal pælingin á bak við myndbandið var alltaf mínímalismi, einföld en falleg skot og enginn töffaraskapur, bara vera við sjálfir.“

Listræna hliðin skín í gegn
Lagið er pródúserað og mixað af Hauki Páli og Matthíasi Moon. Haukur Páll segir að þetta hafi gengið mjög smurt fyrir sig.
„Við Matti höfðum verið í stúdíóinu að vinna í taktinum og degi síðar kom Trausti og vildi gera lag út frá texta sem þurfti frekar hraðan popo/hip hop takt. Ég sýndi honum verk gærdagsins sem var svo heppilega einmitt það sem hann leitaðist eftir.
Við erum ekki bundnir neinni ákveðni tegund eða stefnu í tónlist svo listræna hliðin fær gjörsamlega að skína í hvert skipti sem við vinnum saman,“ segir Haukur Páll.

Trausti vinnur nú hörðum höndum að nýrri tónlist en það eru nú þegar komin nokkur næstum því kláruð lög á lager sem honum þykir mjög vænt um. Sömuleiðis stefnir hann á plötuútgáfu á næsta ári.
Hér má hlusta á lagið á streymisveitunni Spotify.