Skoðun

Rödd þjóðarinnar

Arnar Þór Jónsson skrifar

Rauður þráður sem greina má í samtölum við fólk á hringferð okkar er þessi: Störfin eru að hverfa frá minni plássum til stærri bæja. Smærri útgerðarfyrirtæki eru að lognast út af. Atvinnulífið er að verða fábreyttara. Opinber embætti hverfa úr bæjunum. Sækja þarf þjónustu um lengri veg.

Þessi lýsing rímar ískyggilega við það sem er að gerast með lýðveldið Ísland í heild: Völdin eru að flytjast úr landi. Lítil og meðalstór fyrirtæki glíma við stöðugt erfiðari rekstrarskilyrði. Stefnumörkun í stórum hagsmunamálum þjóðarinnar flyst í vaxandi mæli út fyrir landsteinana. Löggjöf kemur erlendis frá í pósti. Kjörnir fulltrúar láta erlenda og innlenda embættismenn halda um stýrið í sinn stað.

Mannkynssagan kennir okkur m.a. það að þegar valdið verður fjarlægara fólkinu, þá fer auðurinn sömu leið. Vald og auður safnast saman í þungamiðjunni. Eftir situr fólkið í sveitum og smábæjum, fólkið á jaðrinum. Ísland er á jaðri Evrópu og verður alltaf jaðarsvæði í því stóra samhengi. Því er mikilvægt að við stöndum vörð um sjálfstæði okkar.

Íslendingar hafa áhyggjur af þróun mála í landinu okkar. Frammi fyrir því ber að minna á að það er þjóðin sjálf sem er hinn sanni valdhafi, ekki þingmenn og ekki ráðherrar. Íslendingar vilja eiga rödd og við verðum að eiga rödd. Forsetinn, sem eini þjóðkjörni fulltrúi almennings, á að vera farvegur fyrir rödd fólksins í landinu og standa vörð um hagsmuni þess.

Nú halda fjölmiðlar því fram að stærstur hluti landsmanna hafi gert upp sinn hug vegna forsetakosninganna 1. júní nk. Þetta gera þeir þótt framboðsfrestur sé enn ekki útrunninn og þrátt fyrir að þjóðin hafi enn ekki fengið að tjá sig beint. Kristalskúlur fjölmiðlanna ráða ekki úrslitum í kosningum. Kosningar verða ekki útkljáðar áður en formleg kosningabarátta hefst. Í lýðræðisríki verða allir frambjóðendur að fá að kynna sig á stóra sviðinu áður en gengið verður til atkvæða.

Hringferð okkar hjónanna um landið er farin í þeim tilgangi að eiga samtal við Íslendinga, sjá fólkið og heyra hvað því liggur á hjarta. Okkur er annt um þjóðina og landið okkar. Við viljum gera allt sem í okkar valdi stendur til að hjálpa öðrum að vaxa. Vöxtur einstaklinganna og vöxtur samfélags er bestur þegar hann kemur innan frá og út. Komandi forsetakosningar snúast um fullveldi þjóðarinnar. Fullveldið verður best tryggt með því að efla fólkið í landinu, styrkja innviði Íslands og styrkja þannig samfélag okkar. Með því að sýna úr hverju við erum gerð getur orðið umbreyting til hins betra. Við sem nú lifum stöndum í þakkarskuld við fyrri kynslóðir. Við erum hlekkur í langri keðju. Því ber okkur að standa vörð um sjálfstæði okkar og sjálfstæði þjóðarinnar. Það gerum við við fyrir börnin okkar, landið okkar og framtíðina.

Höfundur er forsetaframbjóðandi. 




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×