Snorri og Nadine kynntust á fréttagólfinu hjá Stöð 2 þegar þau störfuðu bæði sem fréttamenn. Að sögn Nadine voru þau góðir vinir um stund áður en ástin kviknaði á milli þeirra vorið 2022. Þá var ekki aftur snúið. Saman eiga hjónin einn dreng, Má sem er eins árs, en fyrir á Nadine Theodór sem er fimm ára.

Siglufjörður tengir þau saman
Að sögn Nadine er Siglufjörður í miklu uppáhaldi hjá þeim báðum. „Við tengjumst bæði Siglufirði. Fjölskylda Snorra rekur Hótel Siglunes og afi minn er uppalinn á Siglufirði. Við höfum eytt miklum tíma þar saman og elskum þennan fallegasta bæ landsins,“ segir Nadine.
Hvenær trúlofuð þið ykkur?
„Snorri bað mín á ströndinni í Marokkó þann 22. desember 2023, sem var mjög fallegt og gaman.“
Hvernig var brúðkaupsdagurinn?
„Dagurinn var yndislegur í alla staði. Ég naut dagsins með vinkonum mínum í heitum potti, sjósundi og sauna. Svo áttum við æðislega vinkonustund á svítunni á Sigló hótel sem er alveg meiri háttar með fallegu sjávarútsýni. Þar gerðum við okkur sætar og fínar, fengum okkur kampavín og dönsuðum áður en haldið var í Siglufjarðarkirkju.“


Tónlistarveisla í athöfninni
Nadine og Snorri voru gefin saman í Siglufjarðarkirkju af séra Skúla S. Ólafssyni og segir Nadine að athöfnin hafi verið frábær í alla staði.

„Við fengum lúðrasveit til að spila brúðarmarsinn þegar ég gekk inn og eins þegar við gengum út. Í athöfninni sló góður vinur okkar beggja og kærasti bestu vinkonu minnar Önnu Guðbjargar, Allan Sigurðsson, í gegn þegar hann flutti lagið okkar Snorra í sinni útgáfu. Lagið heitir Seabird og er með Alessi Brothers. Allan er ekki vanur að koma fram en syngur eins og engill og það voru ekki mörg þurr augu í kirkjunni.
Eftir það tóku vinir okkar og tónlistarmennirnir Jóhann Kristófer og Flóni lagið 100p sem er lag sem er í miklu uppáhaldi hjá okkur. Það kom virkilega vel út að heyra smá rapp í kirkjunni.“
Tónlistaratriðin má sjá hér að neðan:
Lúðrasveit og skrúðganga í veisluna
Að athöfn lokinni leiddu Nadine og Snorri skrúðgöngu ásamt lúðrasveitinni að Kaffi rauðku þar sem veislan var haldin. Veislustjórar kvöldsins voru þau Þórdís Valsdóttir fjölmiðlakona og Sigurður Ingvarsson leikari sem héldu uppi fjörinu eins og þeim einum er lagið.
Hljómsveitin ClubDub og siglfirska bandið Ástarpungarnir lék fyrir dansi, við það braust út alveg svakalegt partý, partý sem fór hálfpartinn úr böndunum eins og það átti að gera. Síðan sá Dj Danni Delux um að halda partýinu gangandi til klukkan þrjú um nóttina.



Stikkfrí í undirbúningnum
Fór langur tími í undirbúning?
„Við ákváðum strax í upphafi að við ætluðum að fá hjálp við undirbúninginn. Systir mín, Denise Margrét Yaghi og vinkona hennar Karítas Ósk Harðardóttir, sáu alfarið um allan undirbúning. Þær reka fyrirtækið Stikkfrí og ég gæti ekki mælt meira með þeim. Þær skipulögðu allt brúðkaupið, pössuðu að það væri alltaf búið að ganga frá öllum lausum endum í tæka tíð, sáum um skreytingar, fjármál og hvað eina.
Ég hefði aldrei notið mín svona vel ef ég hefði verið búin að eyða allri orkunni minni í undirbúninginn.
„Í staðinn mætti ég bara glöð og kát í brúðkaupið mitt og skemmti mér konunglega án alls óþarfa stress.“

Hvaðan eru fötin ykkar?
„Ég lét sauma kjólinn hjá Ylfu Hjaltested Pétursdóttir sem er fagmanneskja fram í fingurgóma.
Snorri fékk fötin sín hjá klæðskera sínum Agli Ásbjarnarsyni í Suitup Reykjavík. Strákarnir okkar klæddust fötum frá As We Grow.“
Fleiri myndir frá deginum má sjá hér að neðan:












