Skoðun

Nýr tækni­skóli rís við Flensborgarhöfn í Hafnar­firði

Ágúst Bjarni Garðarsson skrifar

Það má segja að vegferðin hafi farið af stað sumarið 2021 þegar viljayfirlýsing um framtíðarhúsnæði Tækniskólans var undirrituð hér í Hafnarfirði, m.a. af þáverandi menntamálaráðherra. Það var því stór stund í Hafnarfirði síðastliðinn fimmtudag þegar stjórnvöld, Hafnarfjarðarbær og Tækniskólinn undirrituðu skuldbindandi samkomulag þess efnis að nýr Tækniskóli verði staðsettur í Hafnarfirði og verkefnið fari nú af stað af fullum krafti í samræmi við stjórnarsáttmála núverandi ríkisstjórnar.

Vinna verkefnisstjórnar

Núverandi mennta- og barnamálaráðherra skipað verkefnisstjórn um framtíðarhúsnæði Tækniskólans sem skipuð var fulltrúum þeirra ráðuneyta sem hafa haft aðkomu að málum; forsætisráðuneytinu, mennta- og barnamálaráðuneytinun og fjármála- og efnahagsráðuneytinu, Hafnarfjarðarbæ og fulltrúum Tækniskólans. Verkefnisstjórnin skilaði af sér fyrir ári síðan og frá þeim tíma hefur verið unnið í samræmi við þá áætlun sem lagt var upp með. Það má því segja að afrakstur mikillar vinnu síðustu ára sé nú að koma í ljós og ánægjulegt að sjá raungerast.

Ég er þakklátur mennta- og barnamálaráðherra, Ásmundi Einari Daðasyni, fyrir að hafa treyst mér fyrir því að leiða verkefnisstjórn um þetta mikilvæga verkefni sem skilar svo þessari niðurstöðu. Hann hefur haft mikla trú á verkefninu frá upphafi og fylgt því fast eftir.

Þörf á nýju húsnæði fyrir Tækniskólann

Hér er um risavaxið skref í eflingu verk- og starfsnáms í landinu að ræða og hefur það verið forgangsverkefni menntamálaráðherra og Framsóknar á kjörtímabilinu. Ljóst er eftirspurnin er til staðar, bæði meðal nemenda og atvinnulífsins og því ánægjulegt að við stígum þetta mikilvæga skref til að mæta þeirri þörf og svara því ákalli sem við heyrum svo skýrt. Tækniskólinn er einn af burðarásum iðn-, starfs- og tæknináms á höfuðborgarsvæðinu og býr nú við húsakost sem er kominn til ára sinna. Í dag fer starfsemi skólans fram í átta byggingum á fimm stöðum á höfuðborgarsvæðinu. Bygging nýs Tækniskóla markar því umbyltingu í aðstöðu til iðn-, starfs- og tæknináms á höfuðborgarsvæðinu. Hér er markmiðið skýrt; hér á að efla námið og aðstöðu, koma allri starfseminni fyrir á einum stað, bregðast við aukinni eftirspurn eftir náminu og mæta þörfum atvinnulífsins. Nú hefst undirbúningur við hönnun og framkvæmdir með áætluð verklok haustið 2029.

Ekkert gerist af sjálfu sér - mikil samgöngubót

Ég hef lengi talað við fyrir því að opinberum stofnunum, skólum og stórum vinnustöðum sé dreift með skynsamlegum hætti um landið. Það er gamaldags hugsun að halda að allt þurfi að staðsetja í miðborg Reykjavíkur. Við verðum að hætta að keyra alla í sömu átt snemma morguns og til baka seinni part dags. Við þekkjum þetta of vel. Hér er verið að vinna í samræmi við þetta og ég veit að framkvæmd sem þessi mun skipta íbúa á höfuðborgarsvæðinu gríðarlegu máli, svo ég tali nú ekki um nemendur og starfsfólk sem kemur af Suðurnesjum eða annars staðar frá.

Það er líka rétt að vissulega mun bygging og starfsemi sem þessi hafa áhrif á innviði í Hafnarfirði. Ég treysti bæjaryfirvöldum vel til þess að leysa farsællega úr þeim málum, en slíkar áhyggjur mega aldrei draga úr krafti okkar sem berjumst fyrir aukinni uppbyggingu, kröftugu atvinnulífi og betra samfélagi. Nýbygging Tækniskólans í Hafnarfirði er lyftistöng fyrir Hafnarfjörð og því ber að fagna.

Hér er rétt að þakka ráðherrum og öllum öðrum sem að málum hafa komið á einhverju stigi þessa verkefnis. Hér er framsýni í forgrunni og auðvitað ber líka að þakka bæjaryfirvöldum í Hafnarfirði, bæði núverandi og þeirri sem sat á síðasta kjörtímabili, fyrir staðfestu og stuðning - þvert á flokka. Svona vinnur Framsókn.

Höfundur er þingmaður Framsóknar, frv. formaður verkefnisstjórnar um framtíðarhúsnæði Tækniskólans, frv. bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs í Hafnarfirði.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×