Milt veður en lægð nálgast Atli Ísleifsson skrifar 20. september 2024 07:14 Hiti á landinu verður fimm til tólf stig yfir daginn. Vísir/vilhelm Hægfara hæðarhryggur teygir sig nú yfir landið og heldur því lægðuðum fjarri, en milda loftinu kyrru, um sinn að minnsta kosti.
Á vef Veðurstofunnar segir að lægðardrag á Grænlandshafi nálgist með kvöldinu og bæti þá smávegis í austanáttina við suðurströndina og lítilsháttar rigningu. Hiti verður fimm til tólf stig yfir daginn. „Bjart með köflum, en þurrt annars staðar og milt veður að deginum. Í nótt og á morgun, laugardag, er útlit fyrir hæga suðaustlæga átt og smá vætu á víð og dreif, en þurrviðri norðaustanlands. Norðlægari vindur á sunnudag, skýjað með köflum, en smá væta við austurströndina og stöku skúrir á Suðausturlandi. Heldur svalara fyrir norðan og austan. Útlit fyrir ákveðna norðanátt með kólnandi veðri er líður á næstu viku, en úrkoma veður þá meira í formi slyddu eða snjókomu fyrir norðan,“ segir á vef Veðurstofunnar. Spakort fyrir klukkan 14.Veðurstofan Veðurhorfur á landinu næstu daga Á laugardag: Suðaustlæg eða breytileg átt, 3-8 m/s og dálítil væta víða um land, en þurrt að kalla á Norðausturlandi. Hiti 5 til 10 stig. Á sunnudag (haustjafndægur): Norðan 3-10 m/s og bjart með köflum, en smá væta norðaustanlands framan af degi. Hiti 1 til 12 stig, hlýjast sunnantil. Á mánudag: Hæg norðlæg eða breytileg átt og yfirleitt léttskýjað, en stöku skúrir við suður- og austurströndina. Hiti 1 til 8 stig, mildast syðst. Á þriðjudag, miðvikudag og fimmtudag: Útlit fyrir norðanátt með slyddu eða snjókomu, en úrkomulaust að kalla sunnantil. Svalt veður.
Veður Mest lesið Sagði upp eftir tíðindi dagsins og segir fleiri uppsagnarbréf á leiðinni Innlent „Flokkur fólksins virðist hafa látið plata sig algjörlega“ Innlent Sellur Sjálfstæðis- og Framsóknarflokks hafi komið í veg fyrir að samningar næðust Innlent Vilja byggja 30 þúsund fermetra verslunarkjarna Innlent Fyrrverandi þingmenn fá ekki sendiherrastöður Innlent Stefán útvarpsstjóri vandar Mogganum ekki kveðjurnar Innlent „Óhjákvæmilega mikil sorg og vanlíðan“ þegar svona mál komi upp Innlent Nýr borgarstjóri studdi tillögu sáttasemjara Innlent Henti byssunni upp á þak um hábjartan dag Innlent Ósáttir kennarar yfirgefa skólana Innlent Fleiri fréttir Útlit fyrir talsverða rigningu Mögulegt hvassviðri fyrir sunnan Lægðagangur í suðri og hæðasvæði í norðri Allhvass vindur sunnantil og dálítil væta Víðast skúrir og él og herðir á vindi í kvöld Úrhellisrigning á Vesturlandi Gular viðvaranir og ekkert ferðaveður Gæti sést til eldinga á vestanverðu landinu Myndarlegir úrkomubakkar fara yfir landið Björgunarsveitir í viðbragðsstöðu: Verkefni björgunarsveita um 300 í gær Óvenjulegt að allt landið sé undir Eldingar víða um land: Litlar sem engar skemmdir í Hallgrímskirkju Vaktin: Aftakaveður gengur yfir landið Appelsínugular viðvaranir taka gildi: Stormur og sums staðar ofsaveður Tjón víða í Norðfirði eftir öfluga vindhviðu Appelsínugular viðvaranir: Gæti minnt á óveðrið 2015 Víða allhvasst og éljagangur Nýr veðurstofuvefur kominn í loftið Ferðalangar taki mið af hríð og hvössum vindum Gengur í sunnanstorm og leiðindaveður um allt land Stórhríð og foktjón í vændum Hviður yfir 40 metra á sekúndu á morgun Djúp lægð beinir illviðri til landsins Næsta lægð skellur á landið og von á asahláku og hvassvirði „Þetta verður hvasst, blautt og hlýtt“ Appelsínugular viðvaranir bætast við þær gulu Gengur í storm með slyddu eða snjókomu „Hvert kemst vatnið? Allt þetta vatn sem er á leiðinni?“ Gefa út gula viðvörun fyrir landið allt Fallegt vetrarveður en vetrarkyrrðin úti á morgun Sjá meira