Háværar sögusagnir eru uppi þess efnis að forráðamenn RB Liðsins ætli að gefa Liam Lawson tækifæri til þess að spreyta sig í síðustu keppnishelgum tímabilsins og þar með leysa af hólmi Daniel Ricciardo.
„Ég verð bara að koma hreint út með það undanfarnar vikur hefur staða mín gagnvart liðinu bara verið þannig að við tökum þetta eina keppnishelgi í einu. Ég hefði að sjálfsögðu viljað að þessi keppnishelgi hefði farið betur,“ sagði Ricciardo í viðtali eftir keppni gærdagsins í Singapúr. „Það gekk ekki upp þannig ég þarf að vera viðbúinn því að þetta sé komið hjá mér.“
Danny Ric ❤️
— Formula 1 (@F1) September 22, 2024
An emotional Daniel Ricciardo speaks after the #SingaporeGP pic.twitter.com/53hD09HZ4z
Og átti Ricciardo þar við að kappaksturinn í Singapúr gæti hafa verið hans síðasti í Formúlu 1.
„Þessi tímapunktur kemur á einhverjum tíma hjá okkur öllum.“
Ricciardo, sem á að baki feril hjá liðum á borð við Red Bull Racing og McLaren, sneri aftur í Formúlu 1 á síðasta ári með það sem makrmið að reyna vera sammkeppnishæfur og tryggja sér sæti hjá Red Bull Racing á nýjan leik.
„Það hefur augljóslega ekki gengið eftir. Ég verð því að spyrja mig þeirrar spurningar: „Hvað annað get ég afrekað? Hver er gulrótin fyrir mig í þessu?
Ég lagði mig fram. Þetta eru engin ævintýraleg endalok en ég verð einnig að horfa á ferðalag mitt til þessa. Rúm þrettán ár í mótaröðinni. Ég er stoltur.“