Hinn síungi Matthías framlengir í Víkinni Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 16. október 2024 18:02 Kári Árnason og Matthías Vilhjálmsson. Víkingur Reynsluboltinn Matthías Vilhjálmsson hefur framlengt samning sinn við Íslandsmeistara Víkinga í knattspyrnu til loka tímabilsins 2025.
Hinn 37 ára gamli Matthías gekk í raðir Víkinga fyrir tímabilið 2023 og stóð uppi sem Íslands- og bikarmeistari með liðinu. Hann hefur verið í nokkuð stóru hlutverki framan af tímabilinu í ár en hefur verið að glíma við meiðsli undanfarnar vikur. Alls hefur hann komið við sögu í 13 leikjum í Bestu deildar karla á leiktíðinni þar sem Víkingar eru í harðri baráttu við Breiðablik um Íslandsmeistaratitilinn sem og fjórum í Mjólkurbikarnum þar sem Víkingar máttu þola tap gegn KA í úrslitum. Einnig hefur Matthías spilað þrjá Evrópuleiki á leiktíðinni en Víkingar hafa þegar tryggt sér sæti í deildarkeppni Sambandsdeildar Evrópu. „Matti er fyrirmyndar fagmaður og hefur eitthvað að sanna eftir frábært fyrsta tímabil. Hann hefur verið mikilvægur partur af Víkingsliðinu síðastliðin 2 ár og hann er mikil fyrirmynd fyrir okkar yngri leikmenn,“ segir Kári Árnason, yfirmaður fótboltamála hjá Víking, í tilkynningu félagsins sem birtist á samfélagsmiðlum í dag. Hinn fjölhæfi Matthías hefur leyst stöðu miðvarðar, miðjumanns og framherja. Hann hefur fimm sinnum orðið Íslandsmeistari og þá varð hann fjórum sinnum Noregsmeistari er hann lék þar í landi ásamt því að verða bikarmeistari þrívegis.
Fótbolti Íslenski boltinn Víkingur Reykjavík Besta deild karla Mest lesið Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Körfubolti Liverpool mætir PSG og Madrídarliðin eigast við Fótbolti Dagmar ofuramma og heimsmethafi: „Maður springur bara út“ Sport Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Enski boltinn Sjáðu markið: Tók Orra enga stund að stimpla sig inn Fótbolti „Vafasamir dómar sem féllu gegn okkur í þessu einvígi“ Fótbolti Bætti skólamet pabba síns Körfubolti Hrósa Ísaki fyrir þroska, hreinskilni og auðvitað að vera góður í fótbolta Sport „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Handbolti Orri mætir Manchester United í Evrópudeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Víkingar með lægra tilboð en „grín“ í Gylfa Valur og Breiðablik í góðum gír í Lengjubikar kvenna Devine til Blika og má spila í kvöld Sjá meira