Skoðun

Redda smokkar málunum?

Aldís Þorbjörg Ólafsdóttir skrifar

Nýleg þingsályktunartillaga um aukið aðgengi ungs fólks að smokkum er fagnaðarefni. Líkt og fram hefur komið í umræðunni er óásættanlegt að ungt fólk meti smokka sem munaðarvöru. Smokkar eru eina getnaðarvörnin sem er bæði vörn gegn kynsjúkdómum og getnaði. Á Íslandi hefur fjöldi nýsmita kynsjúkdóma farið vaxandi síðustu ár. Samkvæmt tölum frá landlækni fjölgaði t.d. nýsmitum lekanda og sárasótt á árunum 2022-2023, en fjöldi klamydíusýkinga stóð í stað.

Í samfélagi þar sem kynfræðsla virðist ávallt vera tabú kemur það í raun ekki á óvart að þetta sé staðan. Ungt fólk kallar eftir aukinni kynfræðslu. Kynfræðsla er hluti af aðalnámskrá en það er enn óljóst hver eigi að sjá um hana og heildstæð kennsluskrá vantar. Í almennri umræðu um kynfræðslu má greina ákveðinn ótta. Kynfræðslunni er settar allskonar skorður sem gerir það að verkum að ungt fólk fær oft ekki þá fræðslu sem þau þurfa!

Mikilvægt er að fræða ungt fólk um kynheilbrigði með upplýsingum byggðum á faglegri og gagnreyndri þekkingu, og að teknu tilliti til aldurs og þroska hópsins. Ungt fólk í dag þarf að þekkja smitleiðir helstu kynsjúkdóma, hafa aðgang að öruggum getnaðar- og kynsjúkdómavörnum, þau þurfa að læra á líkama sinn, geta virt mörk og gefið samþykki. Samhliða gríðarlega auknu aðgengi að klámi og kynferðislegu efni þarf ungt fólk einnig að hafa læsi á það klámefni sem það sér. Sama hvort þau sjá það vegna þess að þau leita það markvisst uppi eða sjá það óviljandi eða einhver annar sýni þeim það. Líkt og annað miðlalæsi þurfa þau að fá verkfæri í hendurnar til þess að geta metið hvað er raunverulegt og hvað ekki, fyrir hverja efnið er framleitt og af hverjum. Að auki er mikilvægt að byggja upp traust, svo börn og ungmenni leiti til okkar fullorðna fólksins, sjái þau kynferðislegt efni sem vekur hjá þeim spurningar. Auk þessa vill ungt fólk fræðast um sjálfróun, fullnægingar, snípinn, útferð, sexting, tíðarhringinn, heilbrigð og óheilbrigð samskipti, píku, typpi, hinseginleikann, virðingu, ofbeldi, endaþarminn, kynsjúkdóma og klám. Þau þurfa oft speglun varðandi líðan sína og hvort það sem þau eru að upplifa sé eðlilegt.

Heildstætt og gott námsefni fyrir kynfræðslu sem tryggir það að nemendur um allt land fái góða og fordómalausa kynfræðslu er lykilatriði, og til viðbótar við það viljum við að sjálfsögðu tryggja aðgengi ungs fólks að smokkum!

Höfundur er kynlífsráðgjafi og formaður Kynís, kynfræðifélags Íslands. Greinin er skrifuð í tilefni SexDaga -viðburðarviku á vegum Kynís.




Skoðun

Skoðun

Sögu­legt tæki­færi

Logi Einarsson,Eydís Ásbjörnsdóttir,Sæunn Gísladóttir,Sindri S. Kristjánsson skrifar

Sjá meira


×