Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Vekjaraklukkan á símanum hringir klukkan 07:30 á virkum dögum. Viðurkenni að í kjölfarið hefst bardagi við „snooze“ takkann sem yfirleitt skilar sér í því að maður er kominn á lappirnar um tíu mínútum síðar.
Stundum þarf ég að vakna fyrr, þegar Wolt eru með svokallaða „global“ fundi í gegnum fjarfundarbúnað, en þeir fundir hefjast klukkan sjö á morgnana, þar vinnur tímamismunurinn við Evrópu gegn manni.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Það fyrsta sem ég geri er að kanna stöðuna á eldri dóttur minni, hún er 10 ára og er morgunhaninn í fjölskyldunni, yfirleitt er hún kominn fram úr á undan mér og fyrirskipar mér að græja nestið fyrir skólann og morgunmat.
Fljótlega eftir það þá ræsi ég kaffivélina sem spilar lykilhlutverk á heimilinu á morgnana. Ég byrjaði seint að drekka kaffi, eða fyrir um fimm árum síðan, en núna er þetta brýnasta lífsnauðsyn um átta leytið til að koma sér af stað út í daginn.“
Hvort myndir þú frekar bjóða þig fram í: Að skúra eða ganga frá þvottinum?
Miðað við núverandi verkaskiptingu á heimilinu myndi ég alltaf taka fyrri valkostinn, að skúra gólfin.
Ég kæmist betur frá því verkefni, þegar ég tek þvottamálin í mínar hendur að þá fylgja því yfirleitt alvarlegar athugasemdir frá öðrum fjölskyldumeðlimum, til dæmis að ég hafi stillt vélina vitlaust eða flokkað þvottinn með röngum hætti.
Hins vegar hefur enginn kvartað yfir því þegar ég hef skúrað gólfin, ekki enn að minnsta kosti.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Ég er hægt og bítandi að koma mér inn nýja starfið mitt hjá Wolt á Íslandi en ég byrjaði þar í byrjun september. Það voru mikil viðbrigði að fara úr fyrirtæki sem telur tvo starfsmenn á skrifstofu yfir alþjóðlegt fyrirtæki sem telur yfir 12 þúsund starfsmenn í 29 löndum. Síðasta vika var sérlega skemmtileg þar sem ég heimsótti skrifstofur Wolt í Noregi á sama tíma og Wolt fagnaði tíu ára starfsafmæli sínu.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Ég reyni að nýta mér tæknina til hins ýtrasta hvort sem um ræðir verkefnastjórnunarkerfi eða dagatalið í tölvunni, í raun er það þannig að ef fundarboðið fer ekki í dagatalið þá eru allar líkur á að ég mæti ekki á fundinn.
Að sama skapi er ég alltaf með minn einfalda „to-do“ lista handskrifaðan í stílabók sem ég uppfæri á hverjum einasta morgni, inn á þann lista fara hlutir sem ég verð að gefa mér tíma í yfir daginn, ekki fullkomið skipulag en virkar.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Ég er þessi hefðbundni næturhrafn, B-týpa, sem hefur verið gert að aðlaga mig að samfélagslegum þörfum A-týpunar. Ég reyni að vera kominn upp í rúmið um miðnættið en það tekst alls ekki alltaf, ætli heiðarlegasta svarið sé ekki yfirleitt um hálf eitt leytið, svo svífur maður inn í draumalandið hálftíma síðar.“