Ómar Ingi þakkar fyrir sig eftir þrjátíu ár Sindri Sverrisson skrifar 30. október 2024 09:00 Ómar Ingi Guðmundsson á hliðarlínunni á leik HK gegn KR í lokaumferð Bestu deildarinnar á laugardag. Það reyndist síðasti leikur hans sem þjálfari HK, í bili að minnsta kosti. vísir/Anton Ómar Ingi Guðmundsson er að eigin ósk hættur sem þjálfari HK-inga í fótbolta, eftir að samningur hans við félagið rann út nú við lok leiktíðar.
Ómar Ingi þakkar fyrir sig á Twitter, nú þegar hann segir skilið við félagið sem hann hefur tilheyrt í um þrjá áratugi. „Takk HK fyrir síðustu um það bil 30 árin,“ skrifar þjálfarinn. Takk HK fyrir síðustu um það bil 30 árin pic.twitter.com/IWirWWtFQP— Ómar Ingi (@OmarIngiGud) October 29, 2024 Ómar Ingi hafði sinnt þjálfun hjá HK nær samfellt frá árinu 2000 þegar hann var ráðinn aðalþjálfari meistaraflokks karla árið 2022. Hann hafði verið aðstoðarþjálfari í skamman tíma en tók svo við sem aðalþjálfari þegar Brynjar Björn Gunnarsson var ráðinn til Örgryte í Svíþjóð í maí þetta ár. Ómar Ingi stýrði HK upp úr Lengjudeildinni í fyrstu tilraun og hélt svo liðinu þar í fyrra. Liðið féll hins vegar niður um deild um helgina, á verri markatölu en Vestri. „Stjórn knattspyrnudeildar þakkar Ómari Inga fyrir góðar stundir í Kórnum og ómetanlegt framlag til félagsins undanfarin ár. Ómar sem er svo sannarlega einn af dáðardrengjum HK hefur í gegnum árin unnið gífurlega gott starf og komið náið að uppgangi knattspyrnudeildar HK,“ segir í tilkynningu HK. HK-ingar hafa nú hafið leit að eftirmanni Ómars.
Besta deild karla Lengjudeild karla HK Mest lesið Fær ekki að spila á Íslandi vegna gamals dóms: „Ekki ógn við þjóðina“ Körfubolti Liverpool mætir PSG og Madrídarliðin eigast við Fótbolti Dagmar ofuramma og heimsmethafi: „Maður springur bara út“ Sport Ratcliffe þekkti ekki fyrirliða kvennaliðsins Enski boltinn Zlatan segir skammarverðlaunin verðskulduð Fótbolti Sjáðu markið: Tók Orra enga stund að stimpla sig inn Fótbolti Bætti skólamet pabba síns Körfubolti „Vissi ekki hvað þessi sársauki þýddi“ Handbolti Hrósa Ísaki fyrir þroska, hreinskilni og auðvitað að vera góður í fótbolta Sport Orri mætir Manchester United í Evrópudeildinni Fótbolti Fleiri fréttir Arnór Smára hættir sem yfirmaður knattspyrnumála hjá Val Sindri Kristinn á óskalista KA Býst við Grikkjunum betri í kvöld „Þetta er einstakur strákur“ Barðist við tárin þegar hann kvaddi Eru þetta stærstu félagsskiptin síðan Pétur fór í KR? „Einbeiti mér að allt öðru en einhverri dramatík á Íslandi“ Faðir Gylfa Þórs segir Börk hafa gert samkomulag við sig „Kemur pabba mínum ekki við hvar ég spila fótbolta“ Nýr lögfræðingur KSÍ á yfir fjögur hundruð leiki í meistaraflokki Umdeild frammistaða Gylfa í kveðjuleiknum Samskiptin furðuleg og fólk tengt Gylfa við stýrið Erlendir miðlar fjalla um skipti Gylfa Þórs: Verður samherji Gunnars Vatnhamar Skagamenn horfa áfram til yngri leikmanna Gylfi má ekki spila með Víkingi í Sambandsdeildinni Freyr vill Höskuld en Blikar sögðu nei Víkingur staðfestir komu Gylfa Stjórn Vals segir Gylfa hafa sýnt liðsfélögunum vanvirðingu Gylfi hefur náð samkomulagi við Víking Nýi markvörðurinn hjá KA sleit hásin Valur samþykkti tilboð í Gylfa Birkir Jakob snýr heim frá Ítalíu og semur við Val Staðfestir brottför Danijels sem spilar ekki á fimmtudag Vestri fær bakvörð frá Svíþjóð KR lánar Óðinn til ÍR Sjáðu fimm marka flengingu frá meisturunum Gylfi fyrirliði í jafntefli á Akranesi Víkingar með lægra tilboð en „grín“ í Gylfa Valur og Breiðablik í góðum gír í Lengjubikar kvenna Devine til Blika og má spila í kvöld Sjá meira