Í kaffispjalli um helgar er rætt við fólk í ólíkum störfum. Við spyrjum alltaf um það hvenær fólk vaknar á morgnana, hvað er það fyrsta sem það gerir þá og hvenær fer fólk að sofa. Við spyrjum líka um skipulagið og helstu verkefnin í vinnunni.
Hvenær vaknar þú á morgnana?
„Ég er mikil B týpa og vakna flesta daga ekki fyrr en tíu. Ég reyni að haga verkefnum dagsins þannig að ég þurfi aldrei að stilla vekjaraklukku, ég finn að þegar ég fæ nægan svefn þá er ég í betra jafnvægi og hausinn á mér er tilbúnari að takast á við verkefni dagsins og koma upp með nýjar og spennandi hugmyndir. Ég hef alltaf þurft mikinn svefn, og ég passa mjög vel að ég fái sjö til átta tíma lágmark.“
Hvað er það fyrsta sem þú gerir á morgnana?
„Ég byrja yfirleitt á því að rúlla í gegnum tölvupóstinn og skilaboðin í símanum mínum. Klára allt sem ég get í símanum, svara emailum og skilaboðum, og svo hægt og rólega kem ég mér af stað inn í daginn og færi mig fram á skriftofuna.
Ég vinn heima flesta daga, þegar ég er kominn fram úr þá oft byrja ég á að fara í sturtu og tek til í eldhúsinu og geng frá ef þess þarf og svo byrja ég að vinna í tölvunni.
Ég er mjög róleg týpa, elska að vakna í rólegheitum og gefa mér tíma í að vakna, kærastinn minn er akkúrat öfugt, hann stillir alltaf vekjaraklukku snemma og rífur sig á lappir og byrjar daginn með trompi og fer í ræktina.
En svona erum við misjöfn haha. Sú aðferð hentar mér alls ekki.“
Dreymdi þig einhvern tíma sem barn/unglingur um að verða heimsfræg söngkona eða leikkona og ef já, þá eins og hver?
„Já ég ætlaði mér alltaf að verða söngkona, ég var mjög virk í félagslífinu þegar ég var yngri og keppti til að mynda öll mín ár á unglinga stigi í söngvakeppni samfés. Mér líður mjög vel upp á sviði, og tónlist er stór partur af mínu lífi. Ég geri oft grín af því að ef allt klikkar þá ætla ég að rífa upp þennan gamla draum og byrja að syngja aftur. En eins og staðan er núna þá er ástríðan annars staðar og maður getur ekki gert allt á sama tíma.“

Í hvaða verkefni ertu að vinna helst í þessa dagana?
„Í dag erum við hjá Blush í mikilli vöruþróunn, erum að hanna ný tæki fyrir Reset vörulínuna okkar, og er stefnan á að stækka þá línu talsvert á næstu tólf til átján mánuðum. Reset vörurnar hafa slegið í gegn á Íslandi og því finnst okkur kjörið að halda áfram og auka úrvalið en frekar.
Við erum einnig að leggja lokahönd á nýtt spil, en fyrir erum með með spilin Sambönd og Forleikur sem hafa selst í um 20.000 eintökum. Núna erum við að bæta við tveimur nýju spilum sem verða með sambærilegu sniði og þau fyrri, en nýjum leikreglum eða fyrir annan markhóp.
Annars eru jólin handan við hornið, svo stór partur af mínum tíma þessa dagana fer í að undirbúa fyrir þann tíma. Panta inn vörur og þess háttar sem fylgir jólavertíðinni.“
Hvernig skipuleggur þú þig í vinnu?
„Mér hefur fundist best að vinna þrjá daga vikunnar í Blush; mánudaga miðvikudaga og föstudaga.
Þá fer 90% af vinnudeginum í að sinna verkefnum tengdum Blush, svara emailinu mínu, panta vörur, vöruþróun, fundir og þess háttar sem fylgir starfinu.
Þriðjudagar og fimmtudagar eru svo „frí” dagar. Ég nýti þá daga oft fyrir auka verkefni til dæmis fyrirlestrar, viðtöl, stjórnarfundir og þess háttar sem er kannski ekki beint tengt Blush.
Þriðjudagar og fimmtudagar eru svona dagar sem ég nota líka oft til hlaða batteríin, oft er ég bara heima og hef þá þessa daga til að henda niður til dæmis nýjum hugmyndum, hitta vini, brasa í eldhúsinu eða eitthvað svona sem ég finn að nærir mig extra mikið.“
Hvenær ferðu að sofa á kvöldin?
„Eins og ég segi þá er ég mikil B týpa svo mér finnst mjög gott að vinna á kvöldin eða hanga langt fram eftir og horfa á sjónvarp. Þannig að flesta daga er ég að fara að sofa um klukkan eitt.
Það er eitthvað við kvöldin og nóttina sem ég heillast af. Ég er með mjög heilaga kvöldrútínu sem ég geri alltaf, og elska svo að leggjast á koddann og hlusta á góða bók á meðan ég sofna.“