Gekk ég yfir sjó og land og ríkisstofnanir líka Magnús Guðmundsson skrifar 23. nóvember 2024 20:00 Framboðsfundur flokkanna í NA kjördæmi á vegum Austurgluggans. Allir frambjóðendur voru spurðir: Hvaða skoðun hafið þið á sjókvíaeldi í Seyðisfirði? Sjá mínútu 37:30 í upptöku https://www.youtube.com/watch?v=jkte25B1tho. Jens Garðar svaraði: “Það eru lög í landinu um fiskeldi. Það er búið að gera haf- og strandsvæðaskipulagið fyrir Austurland og þar á meðal Seyðisfjörð. Það kveður á um fiskeldi í Seyðisfirði. Við styðjum fiskeldi í Seyðisfirði”. Sigmundur Davíð svaraði: “Já það ætti að heimila fiskeldi í Seyðisfirði með ströngum öryggiskröfum”. Ingibjörg Isaksen svaraði: “Leyfisveitingar vegna fiskeldis í Seyðisfirði eru að mér skilst í lögbundnum farvegi núna, og svæði sem koma til álita hafa verið afmörkuð í lögum í haf- og strandsvæðaskipulagi”. Kæru frambjóðendur VÁ – félag um vernd fjarðar hefur barist fyrir hönd 75% íbúa, sem segja NEI TAKK við sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Eftir að hafa hlustað á framboðsfundinn setti ég inn svör þriggja frambjóðenda, sem vilja klárlega fiskeldi í Seyðisfirði og tala um öryggi og að það séu fiskeldislög í landinu. Fálagsmenn VÁ ásamt Katrínu Oddsdóttur lögmanni félagsins, hafa farið á marga fundi með stofnunum, sem koma að laxeldinu, og bent á að það eru lög í landinu bæði fiskeldislög og önnur, lög sem verið er að brjóta í Seyðisfirði. VÁ kynnir hér nokkur þeirra fyrir frambjóðendum. Burðarþolsmat Burðarþolsmat er ekki gert eftir gildandi fiskeldislögum skv. 2. mgr. 6. gr. : Ráðherra skal taka tillit til sjónarmiða um aðra nýtingu hafsvæða en nýtingu vegna fiskeldis við ákvörðun sína skv. 1. mgr. 2. mgr. 4. gr. a. fiskeldislaga : Þegar burðarþol, áhættumat erfðablöndunar og svæðaskipting skv. 1. mgr. liggur fyrir úthlutar ráðherra eldissvæðum. Í Seyðisfirði sinnti ráðherra ekki lagaskyldu sinni og því síður Hafrannsóknarstofnun. Í burðarþolsmötum Hafrannsóknarstofnunar er bara sagt : Jafnframt er bent á að æskilegra er að eldismassi sé frekar utar í firðinum en innar. Burðarþolsmatið tók engum breytingum þrátt fyrir breytingar á fiskeldislögum 2019. Kaldvík fékk þau svæði sem það sóttist eftir í Seyðisfirði. Matvælaráðherra fylgdi ekki lagaskyldu sinni. Ofanflóðamat Staðbundið ofanflóðamat í Selstaðavík liggur ekki fyrir. 18. gr. reglugerðar um ofanflóð hljóðar svona: Telji Skipulagsstofnun þörf á gerð staðbundins hættumats sendir hún beiðni um það til Veðurstofu Íslands. Skv. 7. gr. kostnaður við staðbundið hættumat greiðist af framkvæmdaaðila. Á reglugerðinni sést að Kaldvík, sem lét gera áhættumat ofanflóða, átti aldrei að koma nálægt því að öðru leiti en að greiða fyrir það. Í lögum um ofanflóðamat segir í 5. mgr. 4. gr. Hættumat öðlast gildi þegar ráðherra hefur staðfest það. Taka skal fullt tillit til hættumats við alla skipulagsgerð og skal það lagt fram sem fylgiskjal með skipulagstillögu. Skv. ofangreindu er ekkert staðbundið ofanflóðamat til fyrir Selstaðavík undirritað af umhverfisráðherra. Innviðaráðherra gat því aldrei staðfest strandsvæðaskipulagið í mars 2023. Skipulagið er ógilt því Kaldvík hafði engar forsendur til að skipta sér af vinnslu þess. Farice Farice-1 strengurinn liggur inn miðjan Seyðisfjörð. Farice-ehf rekur þennan mjög mikilvæga innvið, sem þjónar fjarskiptaöryggis Íslands að 1/3 og Færeyja að 2/3 hluta. Þetta er þjóðaröryggismál. Ráðherrar í þjóðaröryggisráði og aðrir ráðherrar sem koma að sjókvíaeldi, eiga að tryggja að öryggi strengsins verði ekki ógnað af sjókvíaeldi. Í skipulagsvinnunni var ekki hlustað á beiðnir Farice ehf og Fjarskiptastofu um að gæta fyllsta öryggis strengsins. Farice ehf bað ráðherra fjarskiptamála vorið 2023 um nauðsynlegar breytingar á fjarskiptalögum til að tryggja öryggi sæstrengja. Af því hefur ekki orðið, en skv. fréttum í haust áformaði ráðherra breytingar vorið 2025. Breytinganna er þörf vegna þess að í fjarskiptalögum er talað um að akkerisfestingar skipa séu bannaðar á helgunarsvæði sæstrengja. Fiskeldisfyrirtæki og SFS hártoga lögin og líta svo á að bannið eigi ekki við um kvíar. Siglingalög segja: Skip er sérhvert fljótandi far nema annars sé getið. Kví er ekkert annað en fljótandi far og þar með skip skv. reglugerð um fiskeldi: Kví: Netpoki sem hangir í fljótandi grind eða er festur á grind sem komið er fyrir við yfirborð lagar . Stjórnsýslan verður að vera sterkari en svo, að það þurfi að bíða í tvö ár til að tryggja þjóðaröryggi og netöryggi tveggja þjóða, Íslands og Færeyja. Innviðaráðherra horfir alfarið fram hjá almannahagsmunum og Farice-1, sem er mikilvægur innviður. Þjóðaröryggisráð, þar sem forsætisráðherra er formaður, hefur ekki komið að þessu öryggismáli. Áhættumat siglinga VSÓ ráðgjöf gerði áhættumat siglinga í Seyðisfirði vegna sjókvíaeldis fyrir Vegagerðina árið 2022. Matið kom illa út fyrir sjókvíaeldið og fór ofan í skúffu. Nú tæpum tveim árum seinna vinnur VSÓ ráðgjöf áhættumat að beiðni Kaldvíkur, og í því er engin þörf talin á mótvægisaðgerðum. Muninn á þessum tveim áhættumötum VSÓ á eftir að skýra. Nýja áhættumatið vitnar ekki í Landhelgisgæsluna eins og gert er í öllum áhættumötum á Vestfjörðum. „Það er mat Landhelgisgæslu Íslands að öryggissvæði siglingaleiða og fjarlægð í hvers kyns fyrirstöðu skuli vera a.m.k. 200 metrar, til að gefa sjófarendum nauðsynlegan viðbragðstíma, t.d. til stefnubreytingar eða til að koma út akkeri.“ 50 m öryggissvæði í Seyðisfirði er bara miðað við kvíar en ekki eldissvæði eins og gert er fyrir vestan. Matið tekur ekki tillit til Farice-1 strengsins og vitnar í ofanflóðamat, sem er ógilt. Engin hnit eða myndir eru sýnd, sem útskýra hvernig á að koma eldisstöðvum fyrir inni í eldissvæðum. Engin áætlun er um skipaumferð, sem þverar fjörðinn vegna sjókvíaeldis ef af því verður. Reyndur skipstjóri á Seyðisfirði hefur skoðað matið og sagt að ef af fyrirhuguðu eldi verður, muni Seyðisfjörður, sem talin hefur verið ein öruggasta höfn landsins, fara úr öruggu siglingasvæði í varhugavert. Seyðisfjörður fær allt aðra meðferð í áhættumati siglinga, sem VSÓ ráðgjöf vann fyrir hagsmunaaðilann Kaldvík, miðað við þau áhættumöt, sem gerð voru í Djúpinu af þrem ríkisstofnunum, Vegagerðinni, Samgöngustofu og Landhelgisgæslu. Þennan mun eiga stofnanirnar eftir að útskýra. Umhverfismat Umhverfismat í Seyðisfirði var unnið að VSÓ ráðgjöf. Svæðisráð kynnti það með tveim valkostum A og B, en lokaniðurstaðan varð þriðji valkosturinn, sem aldrei var kynntur, þar sem grænt verndarsvæði í umhverfismatinu hafði verið þurrkað út til að koma eldissvæði fyrir í Skálanesbót. Þarna er brotið á umhverfislögum. Frambjóðendurnir þrír, sem styðja ekki Seyðfirðinga Ingibjörg er greinilega ekki þingmaður allra í NA kjördæmi. Hún vill friða Eyjafjörð en ekki Seyðisfjörð þrátt fyrir alla þessa ágalla. Hún getur að sjálfsögðu ekki farið gegn eigin formanni Sigurði Inga innviðaráðherra, sem samþykkti strandsvæðaskipulagið í Seyðisfirði, þrátt fyrir öll þessi lagabrot. Sigmundur hefur greinilega ekki kynnt sér sjókvíaeldismálið í Seyðisfirði og gerir sér ekki grein fyrir að allt öryggið er sett í hendur hagsmunaaðilans Kaldvíkur. Jens Garðar, já það eru lög í landinu. Það eru hins vegar engin lög í landinu, sem segja að Jens Garðar f.h. Kaldvíkur megi skipuleggja eldissvæði og áhættumeta Seyðisfjörð. Sjöttu kynslóðar Eskfirðingurinn knái gekk yfir sjó og land og stofnanir ríkisins til að komast yfir 10.000 tonna eldi í Seyðisfirði og tryggja sér og öðrum þar með meiri hagnað af sölu fiskeldisfyrirtækjanna til Norðmanna árið 2017. Stjórnmálamaðurinn Jens Garðar er fullkomlega vanhæfur til að taka afstöðu til sjókvíaeldis í Seyðisfirði, sem aðstoðarframkvæmdastjórinn Jens Garðar hefur barist hart fyrir að fá. Íbúalýðræði Gallup könnun, gerð á faglegan hátt fyrir Múlaþing, hefur staðfest að 75% Seyðfirðinga segja NEI TAKK við sjókvíaeldi í Seyðisfirði. Flestir frambjóðendur á fundinum, aðrir en þessir þrír, vildu að hlustað væri á vilja Seyðfirðinga. Yfir 60% landsmanna eru andvíg því að sjókvíaeldi verði sett í Seyðisfjörð. VÁ gerir samkvæmt þessum niðurstöðum ráð fyrir því að nýtt Alþingi setji íbúalýðræðið í forgang og geri tillögu Stefáns Jóns Hafstein um sjókvíaeldi https://www.visir.is/g/20242652408d/tillaga-i-sjokviaeldismalum að sinni. Það á að virða íbúalýðræðið á Seyðisfirði og lögin í landinu. Takk öll, sem takið undir með Seyðfirðingum og segið NEI TAKK við sjókvíaeldi í Seyðisfirði. VÁ mun berjast áfram og standa vörð um Seyðisfjörð. Við eigum aðeins eina jörð. Höfundur er félagsmaður í VÁ – félag um vernd fjarðar Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Sjókvíaeldi Fiskeldi Múlaþing Umhverfismál Magnús Guðmundsson Skoðun: Alþingiskosningar 2024 Mest lesið Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu Þórður Snær Júlíusson Skoðun Halldór 10.05.2025 Halldór Til hvers þá að segja satt? Pólitískt baktjaldamakk og upplýsingafölsun í Suðurnesjabæ Ari Gylfason Skoðun POTS er ekki tískubylgja Hanna Birna Valdimarsdóttir,Hugrún Vignisdóttir Skoðun Þétting í þágu hverra? Sara Björg Sigurðardóttir Skoðun Hver á auðlindir Íslands? – Kallar á nýja og skýra löggjöf Einar G. Harðarson Skoðun Óvandaður og einhliða fréttaflutningur RÚV af stríðinu á Gaza Birgir Finnsson Skoðun Hvað er verið að leiðrétta? Ægir Örn Arnarson Skoðun Er niðurstaðan einstök? Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024 Friðrik Sigurbjörnsson,Eyþór H. Ólafsson Skoðun Orðskrípið sem bjarga á veiðigjaldinu Ólafur Adolfsson Skoðun Skoðun Skoðun Tala ekki um lokamarkmiðið Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Hver á auðlindir Íslands? – Kallar á nýja og skýra löggjöf Einar G. Harðarson skrifar Skoðun Þétting í þágu hverra? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun Til hvers þá að segja satt? Pólitískt baktjaldamakk og upplýsingafölsun í Suðurnesjabæ Ari Gylfason skrifar Skoðun POTS er ekki tískubylgja Hanna Birna Valdimarsdóttir,Hugrún Vignisdóttir skrifar Skoðun Er niðurstaðan einstök? Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024 Friðrik Sigurbjörnsson,Eyþór H. Ólafsson skrifar Skoðun Hvað er verið að leiðrétta? Ægir Örn Arnarson skrifar Skoðun Loftslagsaðgerðir eru forsenda velsældar til framtíðar – ekki valkostur: Svargrein við niðurstöðum rannsóknar sem kynnt var á Velsældarþingi í gær Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar Skoðun Afsökunarbeiðni til fyrri kynslóða – og þeirra sem erfa munu landið Arnar Þór Jónsson skrifar Skoðun 75 ár af evrópskri samheldni og samvinnu Clara Ganslandt skrifar Skoðun Sigurður Ingi í mikilli mótsögn við sjálfan sig! Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Vetrarvirkjanir Sigurður Ingi Friðleifsson skrifar Skoðun Yfirgnæfandi meirihluti vill þjóðaratkvæði Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Smábátar eru framtíðin, segir David Attenborough Kjartan Sveinsson skrifar Skoðun Leiðrétting veiðigjalda mun skila sér í bættum innviðum Arna Lára Jónsdóttir skrifar Skoðun Hvað er verið að leiðrétta? Gabríel Ingimarsson,Sverrir Páll Einarsson,Alexander Hauksson,Ingvar Þóroddsson,María Ellen Steingrimsdóttir,Oddgeir Páll Georgsson,Ingunn Rós Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Efnahagslegur hagvöxtur þýðir ekki endilega samfélagslegur hagvöxtur Davíð Routley skrifar Skoðun Börn innan seilingar Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Hallarekstur í Hafnarfirði Jón Ingi Hákonarson skrifar Skoðun Hvers konar Evrópuríki viljum við vera? Magnús Árni Skjöld Magnússon skrifar Skoðun Orðskrípið sem bjarga á veiðigjaldinu Ólafur Adolfsson skrifar Skoðun Túlkun er ekkert að fara – en hvað ætlum við að gera með hana? Birna Ragnheiðardóttir Imsland skrifar Skoðun Hagsmunir heildarinnar - Kafli tvö: Eiskrandi kröfur Hannes Örn Blandon skrifar Skoðun Palestína er að verja sig, ekki öfugt Stefán Guðbrandsson skrifar Skoðun Óvandaður og einhliða fréttaflutningur RÚV af stríðinu á Gaza Birgir Finnsson skrifar Skoðun Lýðræði á ystu nöf: Hver er afstaða unga fólksins? Jonas Hammer skrifar Skoðun Hvað ef ég hjóla bara í vinnuna? Eiríkur Búi Halldórsson skrifar Skoðun Litlu ljósin á Gaza Guðbrandur Einarsson skrifar Skoðun Ekki leiðrétting heldur skattahækkun: Afstaða Sjálfstæðisflokksins er skýr Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar Sjá meira
Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Til hvers þá að segja satt? Pólitískt baktjaldamakk og upplýsingafölsun í Suðurnesjabæ Ari Gylfason Skoðun
Er niðurstaðan einstök? Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024 Friðrik Sigurbjörnsson,Eyþór H. Ólafsson Skoðun
Skoðun Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu Þórður Snær Júlíusson skrifar
Skoðun Til hvers þá að segja satt? Pólitískt baktjaldamakk og upplýsingafölsun í Suðurnesjabæ Ari Gylfason skrifar
Skoðun Er niðurstaðan einstök? Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024 Friðrik Sigurbjörnsson,Eyþór H. Ólafsson skrifar
Skoðun Loftslagsaðgerðir eru forsenda velsældar til framtíðar – ekki valkostur: Svargrein við niðurstöðum rannsóknar sem kynnt var á Velsældarþingi í gær Laura Sólveig Lefort Scheefer skrifar
Skoðun Afsökunarbeiðni til fyrri kynslóða – og þeirra sem erfa munu landið Arnar Þór Jónsson skrifar
Skoðun Hvað er verið að leiðrétta? Gabríel Ingimarsson,Sverrir Páll Einarsson,Alexander Hauksson,Ingvar Þóroddsson,María Ellen Steingrimsdóttir,Oddgeir Páll Georgsson,Ingunn Rós Kristjánsdóttir skrifar
Skoðun Efnahagslegur hagvöxtur þýðir ekki endilega samfélagslegur hagvöxtur Davíð Routley skrifar
Skoðun Túlkun er ekkert að fara – en hvað ætlum við að gera með hana? Birna Ragnheiðardóttir Imsland skrifar
Skoðun Ekki leiðrétting heldur skattahækkun: Afstaða Sjálfstæðisflokksins er skýr Guðrún Hafsteinsdóttir skrifar
Flokkar sem telja almenning of vitlausan til að vita hvað sé sér fyrir bestu Þórður Snær Júlíusson Skoðun
Til hvers þá að segja satt? Pólitískt baktjaldamakk og upplýsingafölsun í Suðurnesjabæ Ari Gylfason Skoðun
Er niðurstaðan einstök? Ársreikningur Hveragerðisbæjar 2024 Friðrik Sigurbjörnsson,Eyþór H. Ólafsson Skoðun