Golf

Fór holu í höggi yfir húsið sitt

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bryson DeChambeau fagnaði því mjög vel þegar honum tókst loksins á sextánda degi að fara holu í högg.
Bryson DeChambeau fagnaði því mjög vel þegar honum tókst loksins á sextánda degi að fara holu í högg. @brysondechambeau

Bandaríski atvinnukylfingurinn Bryson DeChambeau hefur dundað sér við það síðustu tvær vikur að reyna að fara holu í höggi yfir húsið sitt.

Þetta hljómar kannski frekar furðulega en er samt staðreynd og þessi eltingarleikur hans við draumahöggið í garðinum hefur slegið í gegn á samfélagsmiðlum.

Það sem meira er að DeChambeau náði þessu loksins á sextánda degi og það er óhætt að segja að kappinn hafi fagnað því vel.

DeChambeau hefur oft slegið frábær högg á glæsilegum ferli en líklega aldrei fagnað eins mikið og þarna.

DeChambeau er með golfholu út í garði fyrir aftan stórt einbýlishús sitt. Húsið er hið veglegasta og á tveimur hæðum.

DeChambeau stillti upp fyrir framan húsið og sá því ekki holuna þegar hann sló.

Hann ákvað að reyna á hverjum degi þar til að hann færi í holu höggi en höggafjöldinn myndi aukast um eitt högg á hverjum degi. Þannig á fyrsta degi fengi hann eitt högg, fjögur högg á fjórða degi og tíu högg á þeim tíunda.

Oft munaði mjög litlu að hann hitti í holuna en loksins á sextánda degi gekk þetta upp. Það má sjá höggin hans á sextánda degi hér fyrir neðan og þar á meðal höggið sem fór rétta leið.

DeChambeau er 31 árs gamall og er eins og er tíundi á heimslistanum í golfi. Hann hefur unnið tvö risamót á ferlinum þar á meðal Opna bandaríska meistaramótið í ár. Hann hefur líka komist í fréttirnar fyrir mikinn stuðning sinn við Donald Trump.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×