Atvinnulíf

Bryn­dís tekur við af Dag­mar hjá Austur­brú

Lovísa Arnardóttir skrifar
Bryndís er fædd og uppalin í Reykjavík en hefur búið og starfað á Austurlandi síðan árið 2000. Hún hefur starfað sem kennari, yfirmaður í hótelrekstri og sem skólameistari Hallormsstaðaskóla.
Bryndís er fædd og uppalin í Reykjavík en hefur búið og starfað á Austurlandi síðan árið 2000. Hún hefur starfað sem kennari, yfirmaður í hótelrekstri og sem skólameistari Hallormsstaðaskóla. Aðsend

Bryndís Fiona Ford hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Austurbrúar. Hún tekur við stöðunni af Dagmar Ýr Stefánsdóttur sem tekur von bráðar við starfi sveitarstjóra Múlaþings.

„Það er spennandi tilhugsun að taka við nýjum verkefnum og fá tækifæri til að nýta reynsluna í þágu Austurlands. Ég hlakka til að vinna með því flotta teymi sem er þar nú þegar. Möguleikar landshlutans eru miklir og sóknarfærin mörg. Ég er sannfærð um að saman getum við unnið markvisst að því að gera landshlutann enn betri en hann er nú þegar, gert hann að stað þar sem fólk vill búa, starfa og njóta þess að upplifa,“ segir Bryndís í tilkynningu um ráðninguna.

Þar kemur fram að Bryndís er búsett á Egilsstöðum með sambýlismanni sínum. Bryndís hefur störf hjá Austurbrú á nýju ári.

Bryndís er fædd árið 1978 og er menntaður sjúkraþjálfari og kennari en hefur auk þess reynslu úr heilbrigðis-, mennta- og ferðaþjónustugeiranum. Hún starfaði sem skólameistari í Hallormsstaðaskóla og leiddi til dæmis umfangsmiklar breytingar á starfi skólans með þróun námsbrautarinnar skapandi sjálfbærni og við undirbúning á fyrsta staðbundna háskólanáminu á Austurlandi í samstarfi við Háskóla Íslands.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×