Fjölskyldan brosti þó sínu breiðasta á rauða dreglinum en Beyoncé og Blue fara með hlutverk mæðgnanna Nölu og Kiöru í myndinni.
Meint brot rapparans felur í sér að hafa nauðgað þrettán ára stúlku árið 2000. Jay Z og Sean Combs, betur þekktur sem P. Diddy, eru báðir sakaðir um nauðgunina en Diddy hefur sömuleiðis verið ásakaður um fjöldann allan af kynferðisbrotum, mannsal og skipulagða glæpastarfsemi. Hinn fyrrnefndi hefur neitað ásökununum og segir þær form fjárkúgunar.
Sömuleiðis hefur vakið athygli að í yfirlýsingu sinni leggur hann áherslu á það séu ekki allir frægir einstaklingar eins. Telja einhverjir að með því sé hann að aðgreina sig frá Combs.