Hugmyndin að Rauðu Jólunum spratt upp út frá frá jólaboði sem Jökull hefur haldið árlega með fjölskyldu sinni og nánustu vinum.
„Ég hef haldið í það að vera á Íslandi um jólin. Verandi á ferðinni stóran hluta ársins, þá er svo mikilvægt að koma fólki saman í þægilegu umhverfi og gera eitthvað skemmtilegt.
Svo þróast þessi árlegi hittingur í Rauðu Jólin, þar sem markmiðið er að gefa til baka og nýta þennan mikilvæga tíma með sínu fólki,“ segir Jökull.
Markmið Rauðu jólanna er að safna fyrir góðum málstað og í ár rennur allur ágóði til Krabbameinsfélags Íslands. Haldið var uppboð og veglegir hlutir frá styrktaraðilum voru boðnir út.
„Í ár vorum við með frábæra styrktaraðila. Við buðum upp á fljótandi veigar úr nýja samstarfi mínu við vínfélagið Maison Wessman og við Kalda.
Þráinn stjörnukokkur á ÓX og Sumac sá um matinn fyrir gesti. Aðalatriðið var svo uppboð sem var stútfullt af frábærum hlutum frá styrktaraðilum og söfnuðum við dágóðri upphæð þar.
Auk þess fer allur ágóði af miðasölu og barnum til Krabbameinsfélagsins líka. Allt þetta kemur frá löngum lista styrktaraðila sem við erum hrikalega þakklát fyrir,“ segir Jökull og bætir við að það sé mikilvægt að hafa þetta létt og heimilislegt.

„Við viljum ekki hafa þetta stíft, við vorum því með sérstök verðlaun fyrir ljótustu jólapeysuna. Jólapeysan er hefð sem ég rígheld í, þó ég sé spurður á hverju ári hvort þetta sé grín.“
Ýmsir skemmtikraftar stigu á stokk og má meðal annars nefna Elínu Ey og Júníus Meyvant, ásamt Jökli sjálfum.
„Þetta var frábært kvöld og hlökkum við mikið til að taka þetta enn þá lengra á næsta ári. Sérstakar þakkir á Hlégarð, Mosfelling og Hilmar Gunnarsson fyrir aðstöðuna í Hlégarði og umgjörð,“ segir Jökull að lokum.
Hér má sjá myndir frá viðburðinum:

















