Þar segir einnig að samhliða þessum samstarfssamningi komi VÍS til með að bjóða upp á þjónustu í nokkrum af útibúum Íslandsbanka og vera með sýnileika í öllum dreifileiðum bankans, vef, appi og netbanka.
„Við erum mjög spennt að bjóða tryggingar sem hluta af vöruframboði Íslandsbanka og auka þjónustuna við okkar viðskiptavini. Við sjáum fjölmörg tækifæri í því að vinna með VÍS og nýta meðal annars fríðindakerfið okkar, Fríðu, sem er eitt öflugasta sinnar tegundar á landinu. Vegferðin með VÍS er einnig hluti af sókn bankans á nýju ári og hluti af nýrri stefnu hans. Þar er horft til frekari krosssölu og enn betri þjónustu. Við hlökkum því mjög til að sækja fram í samstarfi við VÍS,” segir Jón Guðni Ómarsson, bankastjóri Íslandsbanka, í tilkynningunni.
VÍS er í dag með þjónustuskrifstofur á sjö stöðum en Íslandsbanki er með tólf útibú. Með samstarfinu er þjónusta við viðskiptavini beggja félaga þannig aukin. Samstarfið og útfærslur þess verður kynnt nánar á vormánuðum samkvæmt tilkynningunni.
Bæði Íslandsbanki og VÍS eiga djúpar rætur í íslensku samfélagi þar sem í báðum félögum er lögð mikil áhersla á þjónustu og upplifun viðskiptavina.
„Við erum ákaflega stolt af því að kynna þetta samstarf við Íslandsbanka. Með því stígum við stórt skref í að bæta upplifun viðskiptavina okkar en með því að sameina krafta okkar gerum við viðskiptavinum kleift að fá bæði fjármála- og tryggingaþjónustu á einum stað. Við hlökkum til að kynna útfærslur samstarfsins betur á næstu mánuðum og erum fullviss um að viðskiptavinir muni upplifa aukinn ávinning enda leggja bæði félög áherslu á framúrskarandi þjónustu,” segir Guðný Helga Herbertsdóttir, forstjóri VÍS, í tilkynningu.