Hviður yfir 40 metra á sekúndu á morgun Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 2. febrúar 2025 11:03 Útlit er fyrir slæma færð víða um land á morgun. Vísir/Vilhelm Veður verður rólegt í dag en það er skammvinn sæla því útlit er fyrir stórviðri í flestum landshlutum á morgun. Í kvöld nálgast kröpp lægð úr suðri og það gengur í austan 18 metra á sekúndu með rigningu og snjókomu víða, á morgun fara hviður sums staðar yfir 40 metra á sekúndu á norðanverðu landinu.
Þetta kemur fram í hugleiðingum veðurfræðings á Veðurstofu Íslands. Þar segir að næsta lægð fylgi strax í kjölfarið og að hún gangi norður yfir landið á morgun og sé afar djúp. Spár gera ráð fyrir að lægðarmiðjan verði yfir vestanverðu landinu um hádegisbil, þá verði skollinn á sunnan stormur á austurhluta landsins en annars staðar verði áttin breytileg og vindur hægari. Rigning verður víða um land og hiti á bilinu 2 til 8 stig en líkur á snjókomu norðvestantil. Seint um daginn verður lægðin komin norður fyrir land. Þá gengur í vestan og suðvestan 20 ti l28 metra á skúndu og kólnar með snjókomu eða éljum en styttir upp á Norðaustur- og Austurlandi. Annað kvöld dregur svo úr vindi sunnan heiða. Það er sem sagt útlit fyrir slæmt veður í flestum landshlutum á morgun en versta veðrið verður bundið við austurhluta landsins fyrri part morgundagsins samkvæmt nýjustu spám Veðurstofunnar. Síðdegis og um kvöldið er spáin einnig afar slæm fyrir Vestfirði og Norðurland. Suðvesturhluti landsins sleppi best. Þó kemur fram að staðan sé býsna viðkvæm og að smá tilfærsla á lægðinni geti breytt spánni töluvert. Veðurhorfur á landinu næstu daga: Á þriðjudag:Suðvestan 10-18 m/s og éljagangur, en bjart að mestu um landið norðaustanvert. Vægt frost. Bætir heldur í vind um kvöldið. Á miðvikudag:Suðvestan 13-20 og él, en áfram þurrt norðaustanlands. Hvessir seinnipartinn og hlýnar með rigningu eða slyddu, víða sunnan 20-28 m/s (stormur eða rok) um kvöldið. Á fimmtudag:Sunnan 23-30 m/s (rok eða ofsaveður) um morguninn og talsverð rigning. Hiti 6 til 14 stig, hlýjast í hnúkaþey á norðaustanverðu landinu. Snýst í suðvestan 10-18 eftir hádegi með éljum og kólnandi veðri, fyrst vestast á landinu. Á föstudag:Sunnan og suðvestan 10-18 og snjókoma eða él, en yfirleitt þurrt á Norðaustur- og Austurlandi. Vægt frost. Á laugardag:Vaxandi sunnanátt með rigningu eða slyddu og hlýnandi veðri. Áfram þurrt norðaustantil.
Veður Mest lesið Reksturinn í uppnámi og uppsagnir fyrirhugaðar Innlent Trump „mjög reiður“ út í Pútín Erlent Áfram talinn vanhæfur til að taka sæti í ráðinu Innlent „Margir sem ég þekki hafa þurft að yfirgefa heimili sín“ Erlent Le Pen sakfelld fyrir fjársvik og bannað að bjóða sig fram Erlent Þrír fundust látnir í Noregi Erlent Trúverðugleiki forsætisráðherra sé í húfi Innlent Fordæma árás á sjúkraliða Erlent Bein útsending: Ráðherra kynnir fjármálaáætlun Innlent „Sonur minn hjálpar mér að halda áfram“ Erlent Fleiri fréttir Dregur úr vindi þegar líður á daginn Sundgestir reknir inn vegna þruma og eldinga Hlýnandi veður Veðurviðvaranir um helgina Góður möguleiki á að sjá deildarmyrkva Snjókoma sunnantil eftir hádegi Stöku skúrir eða slydduél sunnan heiða Vindasamt á meðan öflugt úrkomusvæði gengur yfir landið Suðvestanátt með skúrum víða um land Vindasamt og úrkomusvæði gengur yfir landið Slydda eða snjókoma með köflum í flestum landshlutum Með rólegasta móti Skúrir og slydduél sunnan- og vestantil Rigning sunnan- og vestantil og kólnar síðdegis Dálítil væta og bætir í vind Hæg suðlæg átt og hiti að tíu stigum Mild sunnanátt og dálítil væta Væta af og til Íbúar á austari hluta landsins gætu séð til tunglmyrkvans Norðlæg átt en bjart að mestu sunnanlands Hiti að tíu stigum en víða næturfrost Vestlæg átt leikur um landið Víða allhvass vindur norðantil síðdegis Yfirleitt hægur vindur en allvíða él Breytileg átt og einhver él á sveimi Rólegt veður næstu daga Vindasamt og rigning Gul viðvörun á Vestfjörðum í kvöld og nótt Slydda og snjókoma víða um land Appelsínugular viðvaranir í kortunum Sjá meira