Sautján ára stúlka lést í hákarlaárás Samúel Karl Ólason skrifar 3. febrúar 2025 13:21 Ekki liggur fyrir hverslags hákarl um er að ræða. Myndin tengist fréttinni ekki beint. Getty/Auscape Sautján ára stúlka lét lífið þegar hún var bitin af hákarli undan ströndum Ástralíu í morgun. Þetta er í annað sinn sem banvæn hákarlaárás á sér stað á svæðinu á þessu ári.
Stúlkan var á sundi við Bribie-eyju við austurströnd Ástralíu þegar hákarl beit hana, samkvæmt frétt Ríkisútvarps Ástralíu. Nánar tiltekið var hún á Woorim-ströndinni svokölluðu en vitni segja árásina hafa gerst í grunnu vatni. Hákarlinn mun hafa bitið hana í aðra höndina. Árásin átti sér stað um klukkan fimm að staðartíma. Þessi strönd er sögð vinsæl meðal heimamanna og ferðamanna þar sem fólk syndir, veiðir og fer á brimbretti. Nokkuð mikið er um hákarla á þessu svæði en sjaldan svo nærri landi. Þá eru hákarlavarnir á svæðinu en ekki er vitað um hverslags hákarl er að ræða. Þetta er þriðja hákarlaárásin undan ströndum Queensland, norðausturhluta Ástralíu, á undanförnum þremur mánuðum og önnur banvæna hákarlaárásin á innan við mánuði. Margir urðu vitni að árásinni þar sem stúlkan var með vinum sínum.
Ástralía Mest lesið Segist bera fulla ábyrgð... en samt ekki Erlent Vildi birta upptökur af ofbeldinu: „Fólk þarf að sjá til að skilja“ Innlent Hún er sögð með fagrar línur, vel byggð, háfætt og rennileg Innlent Ungmenni kýldi lögreglumann við eftirlit og beit annan Innlent Laun bæjarstjóra vanvirðing við íbúa Innlent Heimsækja eingöngu herstöð á Grænlandi Erlent Palestínumenn mótmæla Hamas á Gasa Erlent Vill fartölvu í fangelsið Erlent Fundu stærstu lífrænu sameindirnar hingað til í gömlu sýni Erlent Danir kveðja konur í herinn Erlent Fleiri fréttir Palestínumenn mótmæla Hamas á Gasa Segist bera fulla ábyrgð... en samt ekki Heimsækja eingöngu herstöð á Grænlandi Fundu stærstu lífrænu sameindirnar hingað til í gömlu sýni Vill fartölvu í fangelsið Pyttur opnaðist skyndilega á hraðbraut Vance á leið til Grænlands Danir kveðja konur í herinn Vilja aðstoð við útflutning og losna við þvinganir áður en þeir hætta árásum Íhuguðu að leyfa páfa að deyja í friði Sakar Bandaríkjastjórn um óásættanlegan þrýsting á Grænland Óvíst að greint verði frá niðurstöðum viðræðna í Sádi Arabíu Afi og amma Émile Soleil grunuð um að hafa banað honum Spjallklúður Hegseth, Vance og Waltz vekur hneykslan Dánaraðstoð jókst um tíu prósent í Hollandi í fyrra Palestínskur leikstjóri barinn af landtökumönnum og handtekinn Rússar sagðir vilja draga viðræður á langinn Misstu útlimi í árásum en vilja halda áfram að hjálpa Bættu blaðamanni óvart í Signal-hóp um árásir á Húta Grípa þurfi í taumana vegna berklasmita hjá börnum í Evrópu Fundu þúsundir mynda, myndskráa og kynlífsdúkku sem lítur út eins og barn Fuglaflensa greinist í sauðfé á Englandi Yfir 1.100 handteknir í mótmælunum í Tyrklandi Segir orkuinnviðasamkomulagið enn í gildi þrátt fyrir stöðugar árásir Réttarhöld hafin yfir Depardieu Saka Khalil um að hafa farið leynt með störf sín fyrir UNRWA Tekur við stöðu starfandi forseta á ný Yfir 50 þúsund látnir á Gasa og 113 þúsund særðir Segir heimsókn Ushu Vance og Mike Waltz til Grænlands „ögrun“ Trump vofir yfir Kanadabúum sem eru á leið í kosningar Sjá meira