Skoðun

Nýr leið­togi - Sam­einandi afl

Hrafn H. Dungal skrifar

Sjálfstæðisflokkurinn er sá flokkur sem lengst af hefur verið við völd í lýðveldissögunni og er það líklega meginforsenda þess að Ísland er eitt mesta velferðar- og velsældarríki heims. Sjálfstæðiflokkurinn hefur nefnilega þá grundvallarstefnu að æskilegast sé fyrir samfélagið að einstaklingurinn fái að blómstra á eigin forsendum; frelsið til að búa til eigin velgengni, með eins litlum afskiptum ríkisvaldsins og kostur er.

Í seinni tíð hefur flokkurinn þó fjarlægst kjósendur sína eins og endurspeglast í kosningum síðustu ára. Það er m.a. vegna þess að stefnu flokksins hefur ekki verið fylgt í alltof löngu og oft á tíðum baneitruðu samstarfi við önnur stjórnmálaöfl. Sjálfstæðisstefnan er bókstafleg ávísun á framþróun og velmegun þjóðar. Til að flokkurinn geti aftur náð fyrri styrk þarf að setja þá stefnu aftur á dagskrá.

Í því samhengi er mikilvægast að til forystu í flokknum veljist leiðtogi sem getur laðað að nýtt fólk, unga sem aldna. Leiðtogi sem opnar faðminn á ný fyrir þeim sem snúið hafa baki við flokknum. Leiðtogi sem getur sætt ólík sjónarmið og er ekki brennimerktur ákveðnum fylkingum.Leiðtoginn þarf fyrst og fremst að vera það sameinandi afl sem áður gerði flokkinn að risavaxinni breiðfylkingu, hvers áhrif gerðu Ísland að því velsældarríki sem það er í dag.

Það er því gríðarlegt tækifæri til sóknar fyrir flokkinn að í framboði sé Guðrún Hafsteinsdóttir, sem hefur lifað og hrærst í ábyrgðarstöðum atvinnulífsins árum saman. Í því felst meiriháttar reynsla af því að leiða saman ólíka hópa og sætta sjónarmið, í krafti þess að berjast fyrir sameiginlegri hugsjón. Þetta eru þeir kostir sem Guðrún Hafsteinsdóttir býr yfir. Þetta eru þeir kostir sem flokkurinn þarf til að endurheimta fyrri styrk, til hagsbóta fyrir samfélagið allt. Stétt með stétt.

Höfundur er lögmaður og sjálfstæðismaður til margra ára.




Skoðun

Sjá meira


×