Íslenski boltinn

Peder­sen með tvö og Vals­menn í undan­úr­slit

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Patrick Pedersen komst í hundrað marka klúbbinn í efstu deild á síðasta tímabili.
Patrick Pedersen komst í hundrað marka klúbbinn í efstu deild á síðasta tímabili. vísir/anton

Patrick Pedersen skoraði bæði mörk Vals í 1-2 sigri á Vestra í riðli 1 í Lengjubikar karla í fótbolta í dag.

Leikurinn átti að fara fram fyrir vestan í gær en var færður inn í Fífuna í Kópavogi og var leikinn í hádeginu.

Vestri náði forystunni á 31. mínútu þegar Diego Montiel skoraði. Ísfirðingar leiddu í hálfleik, 0-1.

Á 49. mínútu jafnaði Pedersen metin og hann skoraði svo aftur á 77. mínútu og tryggði Val sigurinn. Ekki nóg með það heldur eru Valsmenn einnig komnir í undanúrslit Lengjubikarsins.

Valur vann fjóra af fimm leikjum sínum í riðli 1 og gerðu eitt jafntefli. Vestri er með fjögur stig í 4. sæti riðilsins og mætir Þrótti í síðasta leik sínum í Lengjubikarnum á laugardaginn.

Pedersen hefur verið sjóðheitur í Lengjubikarnum og skorað sjö mörk í keppninni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×