Innlent

Pall­borðið á Vísi: Hvar stendur Ís­land gagn­vart Trump, tollastríði og breyttri heims­mynd?

Elín Margrét Böðvarsdóttir skrifar
Pawel Bartoszek, Friðjón Friðjónsson, Stefán Pálsson og Sigríður Á. Andersen eru gestir Elínar Margrétar Böðvarsdóttur fréttamanns í Pallborðinu á Vísi í dag.
Pawel Bartoszek, Friðjón Friðjónsson, Stefán Pálsson og Sigríður Á. Andersen eru gestir Elínar Margrétar Böðvarsdóttur fréttamanns í Pallborðinu á Vísi í dag. Vísir/Einar

Það hefur mikið gengið á undanfarna daga og vikur í heimsmálunum. Upp úr sauð milli leiðtoga Bandaríkjanna og Úkraínu í Hvíta húsinu og hernaðaraðstoð Bandaríkjanna við Úkraínu verið sett á ís á meðan Evrópuleiðtogar þétta raðirnar og heita auknum útgjöldum til öryggis- og varnarmála. Þá er tollastríð hafið á milli Bandaríkjanna og Kanada auk Kína og Mexíkó og útlit fyrir að Evrópa gæti orðið næst.

Það er af mörgu að taka hvað varðar breytta stöðu í alþjóðakerfinu og hvaða áhrif þetta kann allt saman að hafa á Ísland. Til að ræða þessi mál koma góðir gestir í Pallborðið á Vísi í beinni útsendingu klukkan 14:15 í dag. Þetta eru þau Friðjón Friðjónsson, borgarfulltrúi og áhugamaður um bandarísk stjórnmál, Sigríður Andersen, þingmaður Miðflokksins og fyrrverandi dómsmálaráðherra, Stefán Pálsson, sagnfræðingur og hernaðarandstæðingur, og Pawel Bartoszek, þingmaður Viðreisnar og formaður utanríkismálanefndar.

Gestirnir eru sammála um sumt en ósammála um annað og hafa um margt ólíka sýn á þá stöðu sem uppi er í heimsmálunum og hvernig Ísland ætti að haga málum. Því má búast við líflegum umræðum sem ekkert áhugafólk um alþjóðastjórnmál og öryggis- og varnarmál ætti að láta fram hjá sér fara.

Útsendingu er lokið en unnt er að spóla til baka í spilaranum hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×