Íslenski boltinn

Trúir á Óla Kristjáns og Jesú Krist

Aron Guðmundsson skrifar
Katie Cousins er mætt aftur í Laugardalinn. Hún hefur verið einn besti leikmaður íslenska boltans undanfarin ár. Hvalreki fyrir Þróttara.
Katie Cousins er mætt aftur í Laugardalinn. Hún hefur verið einn besti leikmaður íslenska boltans undanfarin ár. Hvalreki fyrir Þróttara. Vísir/Sigurjón

Kristin trú er Kati­e Cousins, einum besta leik­manni Bestu deildarinnar undan­farin ár, það mikilvægasta í lífinu. Hún er mætt aftur í Þrótt Reykja­vík og stefnir á titil þar.

Kati­e endur­nýjar kynnin við lið Þróttar Reykja­víkur á komandi tíma­bili. Hún spilaði fyrir liðið tíma­bilið 2021 sem og 2023 og eftir stutt stopp hjá Val á síðasta tíma­bili, þar sem að hún varð bikar­meistari, er hún nú mætt aftur í Laugar­dalinn eftir að ekki náðist sam­komu­lag milli hennar og Vals um nýjan samning.

„Á endanum gekk það ekki upp. Ég átti ekki að vera þar á næsta tíma­bili og er mjög ánægð með að vera mætt aftur í Þrótt með mínum gömlu liðs­félögum en nýjan þjálfara sem ég ræddi aðeins við á síðasta ári og var dálítið svekkt með að geta ekki spilað undir á þeim tíma. Ég er mjög spennt fyrir því að spila undir stjórn Ólafs á komandi tíma­bili. Spennt fyrir því að vera komin aftur hingað.“

En af hverju gekk þetta ekki upp með Val. Snerist þetta um peninga eða eitt­hvað annað?

„Á endanum sáu þeir mig ekki sem hluta af sínum framtíðarplönum. Það er í lagi mín vegna enda þeirra að ákveða.“

Þannig að þetta þeirra ákvörðun?

„Já en eins og ég segi þá þurfti ég ekki að hugsa mig tvisvar um þegar að Þróttur kom að borðinu. Fólkið hér í kringum félag er frábært. Þegar að ég rakst á það á förnum vegi á síðasta ári lét það mig vita að hér ætti ég alltaf samastað.“

Katie hefur mikið álit á Ólafi Kristjánssyni, þjálfara Þróttar Reykjavíkur sem tók við liðinu fyrir síðasta tímabil.vísir / anton brink

Eftir að hafa slegið í gegn hér á landi bjuggust kannski margir við því að Kati­e tæki skrefið í stærri deild í Evrópu en svo var ekki.

„Við skoðuðum nokkra kosti, ég og mitt teymi lögðum góða vinnu í það kannski þarf eitt­hvað að breytast í framtíðinni ætli ég mér að taka það skref. En eins og ég sagði áður er ég ánægð með að vera komin aftur hingað.“

„Í sann­leika sagt þá hef ég aldrei vitað hvað ég ætlaði mér að gera ár frá ári. Ég hef verið föst á milli þessa að reyna fyrir mér annars staðar en á sama tíma er hluti af mér sem virki­lega líður vel með að vera hér á Ís­landi. Ég tek þetta bara ár frá ári og hingað til hef ég alltaf komið aftur. Þetta er fjórða árið mitt hér á landi.“

Þróttur hefur undir stjórn Ólafs Kristjáns­sonar verið að þétta raðirnar fyrir komandi tíma­bil og í Kati­e fær liðið einn allra besta leik­mann deildarinnar undan­farin ár. Sigur­vegara.

Hvað getur Þróttur af­rekað á komandi tíma­bili?

„Ég tel okkur geta barist um Ís­lands­meistara­titilinn. Við höfum yfir að ráða góðum hópi leik­manna. Upp­aldir leik­menn eru orðnir árinu eldri og hafa öðlast reynslu, þjálfara­t­eymið er öflugt. Ég tel okkur hafa allt sem þarf, þetta þarf bara að smella saman.“

Trúföst Drottni, Guði og Jesú Krist

Kati­e er í góðu sam­bandi við al­mættið. Trúin er henni mikilvæg.

„Ég á í góðu sam­bandi við söfnuðinn í Baptis­ta­kirkju í Kópavogi. Hef vanið mig á að fara í kirkju þar síðan að ég kom hingað til lands. Kristin trú mín er lík­lega það mikilvægasta í mínu lífi. Mun mikilvægari en fót­boltinn. Ég hef alltaf viljað tengjast trúnni og fylgja henni. Ég hef viljað vera trúföst Drottni, Guði og Jesú.“

Katie Cousins í leik með Þrótturum fyrir nokkrum árum síðanVÍSIR/VILHELM

„Frá mínum bæjar­dyrum séð hefur Guð gefið mér getu til að spila fót­bolta og ég vil nota þær gjafir sem hann hefur veitt mér til að vinna vel, skemmta mér og reyna að heiðra hann í öllu sem ég geri í lífinu. Ég vil reyna spila eins lengi og ég get og heiðra hann.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×