Þar með virðist útséð um að Spasskí verði grafinn við hlið Bobby Fischers í kirkjugarðinum að Laugardælum við Selfoss. Spasskí hafði sjálfur spurt þegar hann lagði blómsveig að leiði Fischers í marsmánuði 2008 hvort laust pláss væri við hliðina og gefið sterklega til kynna að þar vildi hann einnig liggja.

„Það er vonlaust að eiga við þetta lengur. Við leggjum ekkert í að ráðast inn í Rússland til að fá Spasskí fluttan til Íslands,“ sagði Guðmundur G. Þórarinsson í samtali við fréttastofu í kvöld.
Guðmundur var forseti Skáksambands Íslands árið sem einvígi aldarinnar var háð í Reykjavík. Guðmundur hafði sjálfur kannað það lauslega undanfarna daga í gegnum sambönd sín í hinum alþjóðlega skákheimi hvort einhver flötur væri á því að Spasskí yrði grafinn á Íslandi.

Spasskí lést í Moskvu þann 27. febrúar síðastliðinn, 89 ára að aldri. Samkvæmt fréttum rússneskra fjölmiðla var útförin gerð frá Dómkirkju Krists frelsara síðastliðinn þriðjudag, 4. mars. Hún er aðaldómkirkja rússnesku rétttrúnaðarkirkjunnar og er staðsett nálægt Kreml á bakka Moskvuár. Meðal viðstaddra voru forseti Alþjóðaskáksambandsins, FIDE, Arkady Dvorkovich, og forseti Skáksambands Rússlands, Andrey Filatov.
Spasskí var síðan jarðsettur í Troyekurovskoye-kirkjugarðinum í vesturhluta Moskvu. Þar hvíla margir frægir rússneskir afreksmenn, íþróttahetjur, rithöfundar, leikarar, söngvarar, kvikmyndaleikstjórar, vísindamenn, stjórnmálamenn, geimfarar, KGB-njósnarar, herforingjar og stríðshetjur. En einnig þekktir stjórnarandstæðingar, eins og blaðakonan Anna Politkovskaya, sem myrt var árið 2006.

Spasskí varð heimsmeistari í skák árið 1969 þegar hann sigraði Tigran Petrosian. Hann hélt titlinum í þrjú ár en tapaði honum til Fischers árið 1972 í einvíginu sögufræga í Reykjavík.
Árið 1976 flutti Spasskí til Frakklands og gerðist franskur ríkisborgari. Hann sneri síðan aftur til Rússlands árið 2012 og árið 2018 var hann kjörinn heiðursforseti rússneska skáksambandsins.

„Mínar fréttir segja að Spasskí hafi haft lítil samskipti við landa sína síðustu árin,“ sagði Guðmundur. Kvaðst hann vilja senda ættmennum og vinum Spasskís innilegustu samúðarkveðjur frá Íslandi.
„Með ósk um að hann hvíli í friði og njóti þeirrar virðingar og heiðurs sem honum ber,“ sagði Guðmundur G. Þórarinsson.
Hér má sjá frétt Stöðvar 2 daginn sem Spasskí fór að leiði Fischers að Laugardælum: